SKÝRSLAN: Fagmannlegur sigur KA gegn Skagamönnum
Hvað réði úrslitum?
KA liðið hélt ró sinni og gæði fremstu manna voru á endanum of mikil fyrir Skagamenn. ÍA voru skipulagðir og þéttir, en gátu ekki haldið út. Hallgrímur og Nökkvi voru virkilega flottir í dag og drógu vagninn fyrir heimamenn.
Bestu leikmenn
1. Nökkvi Þeyr Þórisson (KA)
Skoraði tvö og heldur áfram að skemmta gulum og glöðum Akureyringum. Frábær.
2. Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Farið vaxandi með hverjum leiknum í sumar og það er unun að horfa á hann spila fótbolta þegar að hann nýtur sín inná vellinum.
Atvikið
Rauða spjaldið. Það breytti kannski ekki uppleggi Skagamanna, en það gerði verkefnið talsvert erfiðara.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn skjóta sér upp fyrir Víkinga í 2. sætið. Víkingur heimsækir topplið Breiðabliks á morgun og eiga tvo leiki til góða á KA. Evrópudraumurinn lifir enn góðu lífi fyrir norðan. Staðan er öllu svartari hjá Skagamönnum. Þeir sitja á botni deildarinnar með 8 stig og leita logandi ljósi að fyrsta sigrinum síðan í 2. umferð.
Vondur dagur
Erfitt og sennilega ósanngjarnt að skella þessu á einhvern. Hlynur Sævar fékk réttilega rautt spjald og gestirnir áttu ærið verk fyrir höndum í kjölfarið.
Dómarinn - 8
Með stærstu ákvörðun leiksins á hreinu og var í raun ósýnilegur. Þannig er best að hafa dómgæsluna.




