SKÝRSLAN: Stjörnuhrap á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Valsmenn voru geggjaðir á síðasta þriðjung og leyfðu Stjörnunni ekki að komast upp með neitt einbeitingarleysi og refsuðu gríðarlega í þessum leik. Léttleikandi Óla Jó fótbolti par excellence í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Tryggvi Hrafn Haraldsson
Tvær stoðsendingar og tvö geggjuð mörk, þarf maður að segja eitthvað meira? Magnaður í kvöld. 10/10 frammistaða frá Tryggva í kvöld.
2. Patrick Pedersen
Vá þvílík frammistaða, þrenna frá PP í kvöld og var einnig virkilega góður í uppspilinu. 10/10 frammistaða frá Patrick í kvöld, tvær 10/10 frammistöður í kvöld það er bara svoleiðis (Aron Jó 9/10).
Atvikið
Aukaspyrna Tryggva Hrafns er mark úr efstu hillu, gargandi snilld. Mæli með fyrir alla þá sem hafa ekki séð hana að kíkja á það.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn fara upp fyrir Stjörnuna og skella sér í 4.sæti með 30 stig meðan að Stjörnumenn detta niður í 5.sæti með 28 stig.
Vondur dagur
Einar Karl Ingvarsson átti heldur betur slaka innkomu, kom inn á í hálfleik og byrjaði að gefa mark eftir 4 mínútur, hinir sem voru teknir út af í hálfleik áttu slæmar 45 mínútur en sömuleiðis Einar Karl átti slæmar 45.
Dómarinn - 8
Helgi Mikael virkilega flottur í kvöld og var með, að mér sýndist öll vafaatriðin á hreinu, lagleg vakt hjá Helga í kvöld sem og hans aðstoðarmenn.




