Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
SaltPay-völlurinn
Þór
Þór
2 - 0
HK
HK
Ion Perelló Machi 19'1 - 0Alexander Már Þorláksson 30'2 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Þórsarar völtuðu yfir HK í fyrri hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Frábær fyrri hálfleikur hjá heimamönnum og þeir stóðu vaktina vel í síðari hálfleik. Gekk ekkert upp hjá HK í dag.

Bestu leikmenn

1. Ion Perelló Machi

Magnaður leikmaður sem Þór nældi í undir lok félagsskiptagluggans. Hefur komið gríðarlega sterkur inn í liðið og skoraði glæsilegt mark í dag.

2. Bjarki Þór Viðarsson

Stóð vaktina í miðverðinum eins og herforingi. Þórs hjartað á réttum stað og fleygði sér fyrir allt.

Atvikið

Birkir Valur Jónsson leikmaður HK varð fyrir því óla´ni að viðbeinsbrotna þegar hann lenti illa eftir tæklingu strax á 8. mínútu, mikið áfall fyrir HK og Birki Val.

Hvað þýða úrslitin?

Þór fer upp í 6. sætið með 23 stig tímabundið að minnsta kosti. HK er áfram á toppnum, stigi á undan Fylki sem á leik til góða.

Vondur dagur

Leikmenn HK bitu rosalega lítið frá sér í dag. Það var ekki mikið að gera hjá Aroni Birki í marki Þórs í dag. Varnarleikurinn sömuleiðis ekki uppá marga fiska, menn voru bara að biðja um rangstöðu þegar Alexander rölti með boltann í átt að marki í seinna markinu og Ion fékk mikinn tíma á boltann til að skora fyrra markið.

Dómarinn - 6

Ágætis leikur hjá honum, ekki mikið um stórar ákvarðanir sem hann þurfti að taka. Spurning með aukaspyrnuna sem á 8. mínútu hvort það var inn í teig en það var svo sem ekki nein mótmæli. Svo voru nokkrar ákvarðanir spes en höfðu kannski ekki stór áhrif á leikinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.