Fotbolti.net
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lengjudeild karla
SaltPay-völlurinn
Þór
Þór
2 - 0
HK
HK
Ion Perelló Machi 19'1 - 0Alexander Már Þorláksson 30'2 - 0
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
Þór
90. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtAlexander Már Þorláksson
Þór
90. mín
InnPáll Veigar Ingvason
ÚtBjarni Guðjón Brynjólfsson
90. mín
Fimm mínútum bætt við. Þessi síðari hálfleikur hefur ekki verið uppá marga fiska.
Þór
84. mín
InnKristófer Kristjánsson
ÚtÁsgeir Marinó Baldvinsson
Þór
84. mín
InnSigurður Marinó Kristjánsson
ÚtIon Perelló Machi
HK
79. mín
Gult spjald

Bjarni Páll Linnet Runólfsson

Fer ansi hressilega í Ion. Allt vitlaust í stúkunni, menn hefðu viljað sjá annan lit.
77. mín
Haurits með áhugaverða tilraun. Tekur snúning á miðjum vallarhelmingi Þórs og tekur skotið. Langt framhjá.
75. mín
Ívar Örn fékk boltann fyrir utan teiginn og tekur boltann á lofti. Boltinn endar ofan á slánni.
75. mín
HK fær hér hornspynru.
72. mín
Boltinn verið meira og minna á vallarhelmingi Þórs hér í síðari hálfleik en HK nær ekki að ógna markinu.
70. mín
Bruno Soares með fínan skalla eftir hornspyrnu en boltinn fer rétt yfir.
HK
68. mín
InnTumi Þorvarsson
ÚtHassan Jalloh
Þór
67. mín
Gult spjald

Bjarki Þór Viðarsson

62. mín
Leikurinn hafinn á ný og Aron Birkir heldur leik áfram.
60. mín
Aron Bikrir Stefánsson markvörður Þórs meiddist eitthvað eftir þetta og þarf á aðhlynningu að halda.
59. mín
Það kemur bara skot upp úr aukaspyrnunni og boltinn endar í slánni. Boltinn fer aftur út í teiginn og Þór nær að verja aftur á línu!
58. mín
HK fær aukaspyrnu, fín fyrirgjafastaða.
Þór
53. mín
Gult spjald

Ion Perelló Machi

Barátta á miðjunni hér í upphafi síðari hálfleiks. Menn eru að safna spjöldum.
HK
51. mín
Gult spjald

Arnþór Ari Atlason

46. mín
Síðari hálfleikur hafinn
HK
46. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtÍvar Orri Gissurarson
45. mín
Hálfleikur
45. mín
Það hafa orðið tafir í þessum fyrri hálfleik og þess vegna eru fjórum mínútum bætt við.
40. mín
Fín sókn hjá heimamönnum. Ion fær boltann í D boganum og tekur boltann á lofti en skotið framhjá.
39. mín
Þór fær hornspyrnu.
HK
38. mín
Gult spjald

Ívar Örn Jónsson

Þór
37. mín
Gult spjald

Nikola Kristinn Stojanovic

33. mín
Þórsarar nálægt því að bæta þriðja markinu við en stungusendingin frá Bjarna Guðjóni á Harley Willard ekki nægilega nákvæm og Arnar Freyr kemst á undan í boltann.
Þór
30. mín
MAAAARK!

Alexander Már Þorláksson (stoðsending: Harley Bryn Willard)

MAAAAAAARK!!!!

Alexander kemst í gegnum vörn HK sem hálfpartinn hætti þar sem þeir töldu að um rangstöðu væri að ræða.

Arnar Freyr kemur út á móti Alexander sem vippar snyrtilega yfir hann.
28. mín
Ion að komast í fína stöðu en tekur skotið í miklu flýti og það er vel framhjá.
Þór
25. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtRagnar Óli Ragnarsson
22. mín
Sending fyrir, Oliver Horitz þarf að fara út í teiginn til að sækja boltann, hann tekur skotið í litlu jafnvægi og setur boltann hátt yfir.
Þór
19. mín
MAAAARK!

Ion Perelló Machi (stoðsending: Harley Bryn Willard)

MAAAARK!!!!

Ion með nægan tíma fyrir utan vítateiginn og lætur skotið ríða af, alveg út við stöng! Heimamenn komnir í forystuna!
18. mín
VÁÁÁ!!

Alexander Már með flugskallann sem hafnar í samskeytunum!
15. mín
Þór fær hornspyrnu. HK koma boltanum frá.
HK
14. mín
InnKristján Snær Frostason
ÚtBirkir Valur Jónsson
Birkir Valur heldur í viðbeinið. Hann hefur lent illa þegar brotið var á honum áðan.
13. mín
HK fær hornspyrnu. Ekkert varð úr henni.
11. mín
Örvar Eggertsson með skallann yfir markið eftir fyrirgjöf frá Ívari Erni.
11. mín
Aukaspyrnan fór beint í veggin og Þórsarar koma boltanum frá.
8. mín
Glæfraleg tækling og HK fær aukaspyrnu á vítateigslínunni. Birkir Valur liggur eftir.
4. mín
Bruno Soares lenti í samstuði við leikmann Þórs og þurfti á aðhlynningu að halda. Hann heldur leik áfram en er augljóslega þjáður. Kennir sér mein í síðunni.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn hafinn. Gestirnir koma þessu af stað.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús og má sjá hér til hliðar.
Fyrir leik
Tríóið
Guðmundur Páll Friðbertsson verður með flautuna í kvöld. Sveinn Þórður Þórðarson og Aðalsteinn Tryggvason verða honum til aðstoðar. Magnús Sigurður Sigurólason er eftirlitsmaður KSÍ á leiknum.
Guðmundur Páll Friðbertsson
Fyrir leik
Í sérflokki
HK er á toppi deildarinnar einu stigi á undan Fylki en þessi tvö lið hafa verið í algjörum sérflokki. HK hefur spilað átta leiki í röð án þess að tapa. HK fer langt með að tryggja sér sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð með sigri í kvöld.
Fyrir leik
Hermann í banni
Hermann Helgi Rúnarsson er í banni hjá Þór í dag eftir að hafa verið rekinn útaf í 2-1 tapi liðsins gegn Selfossi í síðustu umferð. Það var ansi umdeilt þar sem Erlendur Eiríksson dómari leiksins gaf röngum manni spjaldið, Orri Sigurjónsson var þá brotlegur.

Selfyssingar stöðvuðu þriggja leikja sigurgöngu Þórs sem situr í 8. sæti deildarinnar og getur farið tímabundið upp í 6. sæti með sigri í kvöld.


Hermann Helgi Rúnarsson
Fyrir leik
Góða kvöldið og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og HK í Lengjudeildinni.

Leikurinn fer fram á SaltPay vellinum á Akureyri og hefst kl 18.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.