SKÝRSLAN: Kórdrengir með útisigur í jöfnum leik
Hvað réði úrslitum?
Þrátt fyrir að vera mjög jafnur leikur náðu Grótta bara ekki að klára sín færi. Kórdrengir byrjuðu leikinn mjög sterkir og fóru aldrei í neinn slæman kafla.
Bestu leikmenn
1. Morten Ohlsen Hanse
Morten var flottur í hægri væng bakverðinum hjá Kórdrengjum. Markið sem hann skoraði í lok fyrri hálfleiks var alveg sturlað.
2. Loic Mbang Ondo
Flottur í vörninni hjá Kórdrengjum. Stjórnaði leiknum vel og datt stundum í miðjuna þar sem hann vann boltann og hljóp upp til að skapa sóknir fyrir Kórdrengjum.
Atvikið
Atvik leiksins var þegar þjálfara teymið hjá Gróttu löbbuðu næstum inn á völlinn þegar þeir vildu fá dæmt hendi í teig Kórdrengja í lok leiksins. Chris var svo að tala við línudómarann yfir því að Kórdrengir væru að ''time wasting'' og fór að stilla úrið sitt til að sýna honum hvað þeir voru lengi að taka spyrnur. Svo skoraði Kórdrengir þriðja markið og hann vildi að leikurinn væri flautaður af sem fyrst.
Hvað þýða úrslitin?
Grótta halda sér í 4. sæti deildarinnar og Kórdrengir fara upp í 6. sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Grótta náðu ekki alveg að klára sýn færi sem þeir fengu og Kórdrengir refsuðu þeim fyrir það. Daði Freyr í marki Kórdrengja átti samt ekki sinn besta leik. Hann var mikið að senda boltanum á leikmenn Gróttu og náðu nokkrum sinnum ekki að grípa boltann í loftinu og missti tak af boltanum í staðinn.
Dómarinn - 7
Vel dæmdur leikur hjá Gunnari og teyminu hanns. Nokkur skrítin rangstöðu dómar og Grótta öskruðu fyrir víti í lok leikins þegar þeir sögðu að boltinn fór í hendi Kórdrengjar leikmann í teignum, en ég sá ekki alveg nógu vel hvor var réttur dómur.



