SKÝRSLAN: HK upp í Bestu deild karla eftir stutt stopp í Lengjudeildinni
Hvað réði úrslitum?
HK nýtti færin sín er það sem réði þessu. Fjölnismenn stjórnuðu leiknum nánast frá upphafi til enda en fóru ílla með færin sem liðið fékk og HK nýttu færin sín vel í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Hassan Jalloh (HK)
Hassan Jalloh skaut HK upp í Bestu deildina. Fékk ekki mikla aðstoð í fremstu víglínu en gerði það sem centerar eiga að gera og það er að skora mörk en hann skoraði annað og þriðja mark HK og var mjög nálægt þrennunni.
2. Reynir Haraldsson (Fjölnir)
Mér fannst Reynir Haraldsson mjög góður í kvöld var upp og niður í vinstri vænginn og skapaði margar hættur með fyrirgjöfum sínum inn á teig HK
Atvikið
Þriðja mark HK sem tryggði HK endanlega upp þegar Hassan Jalloh slapp einn innfyrir og kláraði færið gríðarlega vel.
Hvað þýða úrslitin?
HK hefur tryggt sér annað sæti deildarinnar og er á leiðinni upp ásamt Fylki. Fjölnismenn sitja eftir í þriðja sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Sóknarleikur Fjölnis - Fjölnismenn fengu færin í kvöld en náðu ekki að klára þau færi sem liðið fékk.
Dómarinn - 8
Egill Arnar og hans menn voru flottir í kvöld og ekkert út á þá að setja.



