SKÝRSLAN: Níu fingur á bikarnum
Hvað réði úrslitum?
Fylkir var ekkert endilega mikið betra liðið í dag en frammistaðan var mjög þroskuð. Benedikt skoraði tvö góð mörk og þau skildu liðin að. Afturelding átti góðan seinni hálfleik en þú skynjaðir samt aldrei að sigurinn væri í neinni hættu. Meistarabragur á þessum sigri.
Bestu leikmenn
1. Benedikt Daríus Garðarasson
Skoraði tvö góð mörk í dag sem hefðu getað verið fleiri með smá heppni. Ekki hægt að setja þetta á neinn annan.
2. Arnór Gauti Jónsson
Flottur leikur í dag hjá Arnóri Gauta. Átti stóran þátt í seinna markinu og spilaði heilt yfir mjög vel.
Atvikið
Fyrsta markið í leiknum var klaufalegt og kom Fylkismönnum á bragðið. Ekki mark sem þú vilt fá á þig í þessarri deild.
Hvað þýða úrslitin?
Afturelding er enn í 5. sætinu með 29 stig. Fylkir tók þó stórt skref í átt að þvi að vinna deildina og eru nú með 5 stiga forskot á toppnum og mun betri markatölu en HK. Sigur í næsta leik gegn Botnliði Vogamanna myndi gulltryggja dolluna.
Vondur dagur
Vörnin hjá Aftureldingu var ekki rétt samstillt í fyrri hálfleiknum og gaf tvö ódýr mörk sem skildu liðin að.
Dómarinn - 7
Ekkert út á dómarann að setja í dag.



