Fotbolti.net
@brynjarerlusonBrynjar Ingi Erluson
Brynjar Ingi Erluson
Pepsi-deild karla
Nettó-völlurinn í Keflavík
Keflavík
Keflavík
5 - 0
Fram
Fram
Sigurbergur Elísson 18'1 - 0Sigurbergur Elísson 62'2 - 0Magnús Sverrir Þorsteinsson 69'3 - 0Hörður Sveinsson 73'4 - 0Jóhann Ragnar Benediktsson 81'5 - 0
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Fram í Pepsi-deild karla. Liðin eru klár hér sitthvorum megin við textan. Keflvíkingurinn Jóhann Birnir Guðmundsson tekur út eins leiks bann fyrir rauða spjaldið í síðasta leik gegn FH og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson leikmaður Fram tekur út eins leiks bann í dag vegna fjögurra gulra spjalda. Í lið Keflavíkur vantar líka Hilmar Geir Eiðsson og hjá Fram er Hlynur Atli Magnússon ekki meira með í sumar vegna ökklabrots.
0. mín
Jæja þá er allt komið í gírinn hérna í Sunny-Kef. Nokkrar breytingar eru á liðunum í dag.
0. mín
Eins og áður segir er Hlynur Atli Magnússon ekki með í dag hjá Fram vegna ökklabrots, þá dettur Denis Cardaklija úr hópnum vegna meiðsla en hinn 18 ára gamli Sigurður Hrannar björnsson kemur inn í hans stað.
0. mín
Það er ekkert nema ungviður á bekknum þar einnig. Hólmbert Aron (19), Jökull Steinn (18), Gunnar Oddgeir (20), Stefán Birgir (19), Andri Freyr (18) ásamt Sveinbirni Jónassyni, sem er reynsluboltinn á bekknum.
0. mín
Leikurinn er að fara að hefjast. Dómarinn er að fara að flauta þetta á!
1. mín
Leikurinn er hafinn!
2. mín
Sam Hewson með fyrsta skot leiksins, en það er afar slappt.
6. mín
Framarar sækja á heimamenn. Ómar Jóhannsson ver laglega í tvígang.
11. mín
Frans Elvarsson í dauðafæri! Fékk stungusendingu inn fyrir, en Ögmundur Kristinsson varði frábærlega í markinu! Vörnin sofandi þarna hjá Frömurum, sem heimamenn hefðu átt að nýta sér en gerðu ekki.
Keflavík
18. mín
MAAAARK!

Sigurbergur Elísson

18. mín
SIGURBERGUR!!! Laglega gert hjá honum. Guðmundur Steinarsson átti sendinguna inn fyrir og Sigurbergur kláraði laglega í fjærhornið!
27. mín
Sam Tillen með hörkuskot úr aukaspyrnu en Ómar sá við honum. Gestirnir aðeins að sækja í sig veðrið!
Fram
36. mín
Rautt spjald

Alan Lowing

36. mín
ALAN LOWING FÆR RAUTT!! Hann sparkaði Frans Elvarsson niður, klárt rautt spjald.
42. mín
Áhorfendur á Nettóvellinum eru 713 talsins.
43. mín
EINAR ORRI MEÐ SKALLA Í SLÁ!! Sigurbergur með laglega fyrirgjöf beint á kollinn á Einari sem skallar í slá. Framarar heppnir að vera ekki tveimur mörkum undir.
45. mín
Sam Tillen með gott skot af löngu færi, en Ómar ver boltann yfir markið. Hornspyrna.
45. mín
Hálfleikur! 1-0 fyrir Keflavík. Sanngjarnt, en Framarar hafa þó átt sín færi. Verður erfitt fyrir þá manni færri, en Keflvíkingar halda áfram baráttunni um þriðja sætið.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
53. mín
Kristinn Ingi virtist vera þrumaður niður rétt fyrir utan teig, en ekkert dæmt, boltinn var á milli,
61. mín
Guðmundur Steinarsson með hornspyrnu sem Ögmundur þarf að hafa sig allan í að verja aftur fyrir sig.
Keflavík
62. mín
MAAAARK!

Sigurbergur Elísson

62. mín
SIGURBERGUR MEÐ ANNAÐ MARK!!! Hann fær boltann þarna inni í teignum, heldur honum vel og klárar svo í fjærhornið. Þvílíkur leikur hjá drengnum!
Fram
69. mín
Rautt spjald

Jón Gunnar Eysteinsson

Keflavík
69. mín
MAAAARK!

Magnús Sverrir Þorsteinsson

Keflavík
70. mín
InnHörður Sveinsson
ÚtGuðmundur Steinarsson
70. mín
ALLT AÐ GERAST!! EINAR ORRI SKORAR EFTIR SENDINGU FRÁ DENIS!! Það eru svo eftirmálar þar sem Jón Gunnar Eysteinsson er rekinn útaf fyrir að sparka í Denis. Það er allt bókstaflega að gerast!
Keflavík
73. mín
MAAAARK!

Hörður Sveinsson

73. mín
HÖRÐUR SVEINS STIMPLAR SIG INN!! Hræðilegur varnarleikur hjá Frömurum, Hörður vinnur boltann og skorar í sínum fyrstu snertingum.
Fram
74. mín
InnSveinbjörn Jónasson
ÚtAlmarr Ormarsson
Keflavík
74. mín
InnBojan Stefán Ljubicic
ÚtMagnús Sverrir Þorsteinsson
Keflavík
81. mín
MAAAARK!

Jóhann Ragnar Benediktsson

81. mín
JÓHANN RAGNAR MEÐ MARK BEINT ÚR AUKASPYRNU!!! Frábær aukaspyrna sem hann skrúfar í hægra hornið, óverjandi fyrir Ögmund. Þvílíkur leikur hjá heimamönnum.
Keflavík
83. mín
InnElías Már Ómarsson
ÚtEinar Orri Einarsson
90. mín
Leik lokið! 5-0 sigur hjá Keflavík í dag! Viðtöl og umfjöllun innan skamms!
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.