SKÝRSLAN: Stjörnumenn færðu Blikum titilinn
Hvað réði úrslitum?
Hreint ótrúlegt að liðin hafi farið markalaus í hálfleikinn en það varð eitthvað að gefa eftir í síðari hálfleik. Víkingar komust yfir og margir héldu að þar væri game over en Stjörnumenn sem hafa verið gagnrýndir fyrir að brotna þegar þeir lenda undir sýndu góðan karakter og snéru dæminu við.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Már Kjartansson
Það er ótrúlegt að hugsa til þess að þessi strákur sé fæddur 2006. Hann spilaði frábærlega og lagði upp mark Óskars Arnar og lét finna vel fyrir sér allan leikinn.
2. Daníel Laxdal
Skoraði sigurmarkið og var kletturinn aftast hjá Stjörnumönnum. Gjörsamlega frábær leikur hjá fyrirliðanum.
Atvikið
Það fór um marga Stjörnumenn og Blika að sjá Halla spyrna boltanum úr leik og fá skiptingu. Viktor Reynir Oddgeirsson mætti í sinn fyrsta alvöru mótsleik og sýndi enginn merki um
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik eru sigurvegarar Bestu deildar karla í sumar. Víkingar þurftu á sigri að halda til þess að eiga tölfræðilega möguleika en geta nú mest náð öðru sæti.
Stjörnumenn lyftu sér upp að hlið KR í 4.sæti en sitja neðar á markatölu.
Vondur dagur
Arnór Borg Guðjóhnsen fékk líklega eitt besta færi fyrri hálfleiksins sem hefði sett allt aðra mynd á leikinn. Var óheppinn fyrir framan markið.
Dómarinn - 6
Fyrstu 2 spjöld leiksins draga þetta svolítið niður en í raun eftir þau spjöld fór Ívar Orri að leyfa leiknum að flæða og menn komust upp með meira.




