SKÝRSLAN: Eyjamenn fóru langt með að tryggja sæti sitt
Hvað réði úrslitum?
Frábær fyrri hálfleikur ÍBV og karakterinn sem liðið sýndi undir pressu í síðari hálfleik. Keflvíkingar minnkuðu munin strax í upphafi hans og gáfu heimamenn svolítið eftir á því tímabili. Þeir náðu þó vopnum sínum á ný og sigldu 3 stigum í höfn og fóru ansi langt með að tryggja sæti sitt í Bestu deildinni að ári.
Bestu leikmenn
1. Eiður Aron Sigurbjörnsson
Á sínum degi er Eiður einn af betri varnarmönnum deildarinnar. Var í góðum gír í dag og skoraði úr víti auk þess að hafa góða stjórn á varnarlínu ÍBV heilt yfir.
2. Jón Kristinn Elíasson
Átti ekki byrja leikinn og varð ekki ljóst að hann myndi spila fyrr en örfáum mínútum áður en flautað er á. Var öruggur í sínum aðgerðum og greip á köflum vel inn í.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn stendur upp úr fyrir mér. Ég gat ekki séð brotið þegar atvikið gerist en Vilhjálmur Alvar var vel staðsettur og virtist ekki í nokkrum vafa um að flauta vítaspyrnu. Markið sem skildi á milli kom úr spyrnunni.
Hvað þýða úrslitin?
Keflavík heldur toppsæti neðri hlutans með sín 31 stig. ÍBV stígur risaskref frá fallsæti og setur sex stig á milli sín og Leiknis sem verma fallsæti eftir tap gegn FH.
Vondur dagur
Andri Rúnar Bjarnason fékk ekki eitt, ekki tvö heldur þrjú úrvalsfæri til þess að koma ÍBV í 3-1 og gera út um leikinn en misnotaði þau öll. Sennilega manna brjálaðstur yfir því sjálfur og gerir þá kröfu á sjálfan sig að nýta svona færi.
Dómarinn - 7
Set ekkert út á dóma Vilhjálms í leiknum í dag. Ef hann er sannfærður þá skal ég glaður vera það líka. Fannst samt hálf spaugilegt í fyrri hálfleik þegar hann kom sér í þá stöðu í tvígang að loka góðum sendingarleiðum fyrir liðunum með staðsetningum sínum en allt getur gerst í þessu.



