SKÝRSLAN: Fyrsta þrenna Matthíasar og umdeilt víti
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið áttu sína kafla í þessum leik en varnarleikur FH var bara betri á lengri köflum en varnarleikur Leiknis. Í kringum fyrra mark Leiknis var vörn FH ekki upp á marga fiska en lengstum eftir það var hún nokkuð trygg. Ætla nota þetta box og hrósa mætingunni á leikinn, rúmlega ellefu hundruð áhorfendur á þessum mikilvæga leik sem er vel af sér vikið fyrir leik sem hefst klukkan 15:15 á virkum degi í október.
Bestu leikmenn
1. Matthías Vilhjálmsson
Matti átti ansi góðan dag, fyrsta þrenna hans á Íslandi ef marka má hans eigin heimildir.
2. Jóhann Ægir Arnarsson
Leysti stöðu hægri bakvarðar ágætlega og skoraði fyrsta markið. Vel gert hjá FH-ingnum. Zean Dalügge var næstur á blaði í þetta box.
Atvikið
Þegar FH fær vítaspyrnu í stöðunni 1-0. Gyrðir og Matthías berjast um boltann og Matthías fer í grasið. Erfitt atvik að meta en ætla reyna gera það í boxinu hérna til hliðar. Fjórða mark FH var líka virkilega huggulegt, Kiddi með lipra takta og svo góð afgreiðsla hjá Matthíasi sem innsiglaði sigur FH.
Hvað þýða úrslitin?
FH er komið upp úr fallsæti, upp fyrir Leikni. Fallbaráttan heldur áfram, þrjár umferðir eru eftir.
Vondur dagur
Kristófer Konráðsson leit illa út í fyrsta marki leiksins og var mikið 'næstum því' sóknarlega hjá honum líka. Alls ekkert hræðilegur samt.
Dómarinn - 8,5
Fannst Helgi Mikael dæma þennan leik virkilega vel. Stærsta atvikið er að sjálfsögðu vítaspyrnudómurinn, Matthías virðist pikka í boltann og á sama tíma er Gyrðir líka að reyna sparka í boltann. Boltinn fer í þá átt sem Matthías er að sparka í og Matthías fellur, virkar eins og vítaspyrna í þeirri endursýningu sem sást í útsendingu frá leiknum. Fyrir mér var ekki víti þegar Oliver fór niður en spurning í blálok leiks þegar Máni fór niður í vítateig Leiknis, þá voru úrslitin þó ráðin.




