SKÝRSLAN: Framarar geta þakkað Ólafi Íshólm fyrir stigið í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
HK byrjaði leikinn betur en náðu ekki að nýta tækifærin sem liðið fékk í fyrri hálfleik. Framarar komu sterkari inn í síðari hálfleikinn og ná inn fyrsta markinu en HK gerði vel að koma strax til baka og má segja að þessi leikur hafi verið kaflaskiptur en HK fékk klárlega hættulegri færi sem liðið náði ekki að klára.
Bestu leikmenn
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (Fram)
Ólafur Íshólm fær þessa nafnbót og hélt Fram inni í leiknum í fyrri hálfleik en hann átti tvær til þrjár mjög sterkar vörslur í fyrri hálfleik og sömuleiðis eina í síðari hálfleik.
2. Örvar Eggertsson (HK)
Örvar er að koma á flugi inn í þetta mót. Var maður leiksins í Kópavoginum í fyrstu umferð og var mjög flottur hér í kvöld. Skapaðist alltaf hættur þegar hann fékk boltann á vallarhelmingi Fram. Örvar skoraði jöfnunarmarkið.
Atvikið
Jöfnunarmarkið hjá HK - Örvar Eggertsson fékk sendingu inn fyrir frá Atla Hrafni og menn setja stórt spurningamerki á aðstoðardómara leiksins að hafa ekki flaggað rangstöðu.
Hvað þýða úrslitin?
HK er komið með fjögur stig á töfluna og situr liðið í fjórða sæti deildarinnar. Fram er með tvö stig eftir fyrstu tvær umferðirnar og situr liðið í níunda sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Færa nýtingin hjá HK - Liðið fékk klárlega færin til að skora mörk í kvöld.
Dómarinn - 6
Pétur Guðmundsson var flottur í kvöld en ég set spurningamerki á þennan rangstöðudóm.




