Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Öflug suðaustan, mælt með því að halda bolta niðri.
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 0
Fylkir
Fylkir
Birnir Snær Ingason 10'1 - 0Peter Oliver Ekroth 15'2 - 0
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Gegnheil frammistaða Víkinga í erfiðum aðstæðum

Hvað réði úrslitum?

Víkingar byrjuðu leikinn betur, voru heilt yfir ofan á í leiknum, gæðameiri, þéttari og það var ekki fyrr en í lokin sem Fylkir virkaði sem líklegra liðið til að skora. Eina ógn Fylkis framan af voru föst leikatriði á meðan spil Víkings kom þeim reglulega í álitlegar stöður.

Bestu leikmenn

1. Oliver Ekroth

Mark, stoðsending og hélt markinu hreinu. Ekki hægt að byrja um meira. Markahæsti leikmaður deildarinnar sem stendur.

2. Birnir Snær Ingason

Hann og Logi tengdu vel úti vinstra megin og fékk Birnir mikið pláss til að vinna með, sérstaklega í upphafi leiks. Hann kom Víkingum á bragðið og var besti maður vallarins í fyrri hálfleik.

Atvikið

Annað markið fór langt með þetta, kom eftir að hornspyrna var tekin stutt, Logi fékk boltann og teiknaði hann á fjær þar sem Oliver var klár í að skalla að marki. Sláin inn niðurstaðan og staðan mjög vænleg.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga og hefur enn ekki fengið á sig mark til þessa. Fylkir er án stiga eftir fyrstu tvo leikina.

Vondur dagur

Kom ekki mikið út úr Óla Kalla í leiknum, komst ekki mikið í boltann og tilraunir hans rötuðu ekki á markið. Hvort sem það var hans eigin spilamensku, upplegginu eða frábærum varnarleik Víkings að þakka að Óli Kalli sást lítið veit ég ekki en hann kom ekki með mikið að borðinu. Veðrið átti einnig afspyrnu slæman dag, ömurlegt veður og aðstæður erfiðar.

Dómarinn - 7,5

Fínasti leikur hjá Sigurði. Kallað eftir rauðu spjaldi og vítaspyrnum en virkaði við fyrstu sýn réttar ákvarðanir hjá Þrastarsyni.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.