Fotbolti.net
Besta deildin
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
Glampandi og 9 gráður
KA
KA
3 - 0
ÍBV
ÍBV
Ásgeir Sigurgeirsson 26'1 - 0Bjarni Aðalsteinsson 50'2 - 0Þorri Mar Þórisson 84'3 - 0
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Frábær sigur KA manna á lánlausum Eyjamönnum

Hvað réði úrslitum?

KA menn voru með öll völd á vellinum. Lítil mótstaða hjá Eyjamönnum og þvi var sigurinn aldrei í hættu

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson

Hallgrímur var gríðarlega sterkur að venju í KA liðinu. Kórónaði leik sinn með tveimur stoðsendingum.

2. Hrannar Björn Steingrímsson

Hrannar og Þorri voru gríðarlega sterkir í sóknarleiknum. Hrannar átti stóran þátt í fyrsta marki leiksins og var mikið involveraður í sóknarleik liðsins.

Atvikið

Eigum við ekki bara að segja fyrsta markið. Það hleypti lífi í ansi daufan fyrri hálfleik og sýndi það sem koma skildi.

Hvað þýða úrslitin?

KA nældi í sinn fyrsta sigur og er komið með 4 stig eftir tvo leiki en ÍBV án stiga eftir tap gegn Val í fyrstu umferð.

Vondur dagur

Þetta var ansi dauft hjá ÍBV í dag. Ógnuðu lítið sem ekkert og verða að gera mun betur ætli þeir sér að komast áfram í bikarnum gegn Stjörnunni í vikunni.

Dómarinn - 7

Fór ekki mikið fyrir honum í dag, það er alltaf jákvætt. KA átti mögulega að fá vítaspyrnu þegar Dusan var tekinn niður í teignum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.