SKÝRSLAN: Bragðdauft og markalaust á Greifavellinum
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var lokaður og skipulögðum Keflavíkurmönnum tókst afar vel að halda pirruðum leikmönnum KA í skefjum. Fá opin tækifæri litu dagsins ljós og jafnteflið fullkomlega sanngjarnt.
Bestu leikmenn
1. Nacho Heras (Keflavík)
Stýrði vörn Keflavíkur eins og herforingi og steig ekki feilspor í leiknum. Öruggur í öllum sínum aðgerðum.
2. Steinþór Már Auðunsson (KA)
Markmaðurinn stæðilegi steig upp á mikilvægum augnablikum, þá sérstaklega í fyrri hálfleik og hélt stöðunni markalausri.
Atvikið
Árekstur Ívars Arnar og Jordan Smylie. Ég sá ekki hvað fram fór nákvæmlega - en Sigurður Ragnar, þjálfari Keflavíkur, sagði að slegið hefði verið til Smylie á meðan hann lá á jörðinni. Úr varð talsverður sem að aragrúi leikmanna tók þátt í.
Hvað þýða úrslitin?
KA eru sem stendur í 2. sæti deildarinnar með 5 stig, en Keflvíkingar sitja í því sjötta með 4 stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. KA fara næst í Fossvoginn og mæta toppliði Víkings, en Keflavík fá Eyjamenn í heimsókn.
Vondur dagur
Sóknaruppbygging KA hefur oft verið betri og þeir munu þurfa að leggjast yfir hann á næstu dögum til að leita lausna á spilamennsku sinni gegn lágum blokkum. Alltof margar snertingar á boltanum og hugmyndasnauðir þegar komið var á síðasta þriðjung.
Dómarinn - 6
Fannst leikurinn mega fljóta aðeins betur og það er ansi stór mínus í kladdann ef að Sveinn Margeir var réttstæður þegar hann slapp inn fyrir í fyrri hálfleik og Mathias tók hann niður innan teigs. Sveinn virtist ekki vera fyrir innan í endursýningunni sem að ég sá, en ég verð seint sakaður um að vera með arnarauga.




