Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Hægur vindur, rignir dálítið en teppið rennislétt og blautt
4 - 1
Keflavík
Keflavík
Pablo Oshan Punyed Dubon 25'1 - 0Erlingur Agnarsson 57'2 - 0Gunnlaugur Fannar Guðmundsson (sjm) 63'3 - 03 - 165' Marley BlairDanijel Dejan Djuric 71'4 - 1
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Enn einn Víkingssigur sem þó fengu á sig mark

Hvað réði úrslitum?

Gæðamunur liðanna og sjálfstraustið. Víkingar mættu með kassann úti og ætluðu sér stigin þrjú. Duttu vissulega niður á köflum en alltaf þegar þeir settu í gang og sóttu af krafti fengu þeir færi og hefðu vel getað skorað fleiri mörk. Að sama skapi bognaði Keflavíkurliðið undan pressunni sem Víkingar settu á þá oft á tíðum en sýndu þó inn á milli góða kafla og urðu fyrstir til að setja mark á Víkinga í Bestu deildinni þetta sumarið.

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason

Frábær leikur hjá Birni eða Bidda eins og Víkingar kalla hann. Lék sér á köflum að bakvörðum Keflavíkur sem réðu illa við hann í kvöld. Kom að öllum fjórum mörkum Víkinga og lék virkilega vel. Ef maður á að kvarta yfir einhverju væri það að hann skoraði ekki sjálfur.

2. Pablo Punyed

Stend i raun á gati þegar kemur að því að velja næst besta mann leiksins. Heilt yfir var Víkingsliðið mjög jafnt í sinni frammistöðu og erfitt að ætla gera upp á milli. Pablo setti mark og var eins og venjulega í atinu á miðjunni og lét finna vel fyrir sér. Gæti nefnt nánast alla Víkinga hér þó til að gæta sanngirni gagnvart þeim.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins. Úr blaðamannastúkunni var ómögulegt að dæma en okkur fannst við sjá aðstoðardómara gefa bendingu um mark sem var svo dæmt. Það var svo eftir leik sem maður fór að heyra frá fólki sem var betur staðsett en ég að það hefði sínar efasemdir um að boltinn hafi verið allur inni. Gestirnir kvörtuðu samt ekki um of á vellinum sjálfum og markið stóð. Svo má vel vera að þetta sé bara 100% klárt því ég hef ekki séð endursýningu þegar þessi orð eru skrifuð.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar enn með fullt hús stiga eða fimmtán alls á toppi deildarinnar. Keflavík situr í 10.sæti með fjögur stig

Vondur dagur

Meiðslalisti Keflavíkur er ekkert að styttast þó einn og einn leikmaður sé að detta inn aftur. Stefán Ljubicic frá í dag og Nacho Heras meiðist. Hausverkur Sigga Ragga vegna þessa vex bara. Sjúkraþjálfari Keflavíkur fær þó vonandi ágætt yfirvinnukaup því nóg er að gera hjá honum.

Dómarinn - 7

Var fyrsta markið mark? Eina stóra atvikið í leiknum í rauninni. Mark var dæmt og ég er ekkert viss um að sú ákvörðun hafi haft nokkur áhrif á þróun leiksins þannig séð. Annað er ekki vafamál í mínum huga og stóð Jóhann sína plikt af stakri prýði eins og reyndar yfirleitt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.