SKÝRSLAN: Blikar kláruðu Stjörnumenn á fyrstu 10 mínútum leiksins
Hvað réði úrslitum?
Breiðablik skoruðu tvö mörk á fyrstu 10 mínútum leiksins og læstu svo. Anton Ari á stóran þátt í því og átti mikilvægar vörslur svo að leikurinn myndi ekki opnast eins og við sáum á móti Fram í síðustu umferð.
Bestu leikmenn
1. Gísli Eyjólfsson
Gísli Eyjólfs skoraði fyrra mark Breiðabliks og átti heilt yfir mjög flottan leik hér í dag.
2. Anton Ari Einarsson
Anton Ari átti tvær lykilvörslur í fyrri hálfleik og leyfði leiknum ekki að opnast.
Atvikið
Stefán Ingi skorar aðeins tveimur mínútum eftir að Gísli Eyjólfs hafði skorað fyrra mark Breiðabliks.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik kemur sér í 4. sæti deildarinnar með 9 stig, 6 stigum á eftir Víkingum sem eru í toppsæti deildarinnar.
Stjarnan er í 11. sæti með aðeins 3 stig eftir 5 umferðir.
Vondur dagur
Björn Berg Bryde var steinsofandi á verðinum í seinna marki Blika þar sem Stefán Ingi skallaði boltann inn.
Ísak Andri búinn að vera frábær í síðustu leikjum en hann steig ekki upp í dag, Andri Rafn Yeoman gerði vel í að loka á hann.
Dómarinn - 8
Sá ekkert að dómgæslunni í þessum leik, Ívar Orri og félagar stóðu prýðisvakt.




