SKÝRSLAN: Þróttur í góðri stöðu eftir tvö sigra í röð
Hvað réði úrslitum?
Þróttara liðið tilbúnar alveg frá byrjun og nýttu sér það. Selfoss konur sofandi á fyrstu tuttugu mínútunum og náðu sér aldrei alminnilega í gang og voru heppnar að tapa bara 1-2
Bestu leikmenn
1. Idun Kristine Jorgensen
Var frábær í marki Selfoss í dag og átti fullt af heimsklassa vörslum en verð að gefa Tanyu, Katherine og Sæunni gott hrós sem stóðu sig líka mjög vel í dag.
2. Emelía Óskarsdóttir
Líklega það eina jákvæða sem Selfoss gat tekið úr leiknum. Góð framarlega á vellinum og skoraði gott mark gegn gangi leiksins og gaf Selfossi smá líflínu.
Atvikið
Mark Sæunnar sem reyndist sigur markið sem var stórkostlegt skot í fjær hornið með vinstir og hún gefur Idun engann séns
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur tillir sér á toppinn með 6 stig af 6 mögulegum en Selfoss ennþá stiga lausar og sitja í næst neðsta sæti og byrja mótið ekki vel
Vondur dagur
Vondur dagur hjá öllu Selfoss liðinu sem kom sér aldrei alminnlega í gang og voru alveg sofandi fyrstu 20 mínúturnar og lentu undir á fimmtu mínútu eftir slakan varnarleik
Dómarinn - 7,5/10
Lítið að flauta og ekki mikið að gerast hjá honum en nokkrir dómar sem hefðu geta farið öðruvísi



