SKÝRSLAN: Stjarnan fyrsta sinn héldu hreinu
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn sáu aldrei til sólar í leiknum og ógnuðu marki Stjörnunnar aldrei að ráði. Ákefð Stjörnunnar frá fyrstu mínútu gerði það að verkum að þeir voru allan tímann líklegri til sigurs. Hermann Hreiðarsson þjálfari talar um að annað mark Stjörnunnar hafi verið rothögg og fyrsta markið brandari.
Bestu leikmenn
1. Eggert Aron Guðmundsson
Spilaði virkilega vel í dag og lét finna fyrir sér. Flottur leikur. Sýndi kannski það sem búið er verið að bíða eftir frá honum í sumar.
2. Daníel Laxdal
Batt saman vörnina og er kominn aftur inn i liðið eftir að hafa verið á bekknum. Sást hversu mikill leiðtogi hann er.
Atvikið
Á 76. mínútu missir fyrirliði ÍBV Eiður Aron hausinn. Sparkar Kjartan Má niður inn í teig Éyjamanna án þess að boltinn sé nálægt. Eiður Aron var á gulu spjaldi fyrir og fékk sitt annað gula spjald og vítaspyrna dæmd. Algjörlega glórulaust.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan lyftir sér upp úr fallsætinu og upp í það 8. Lagfæra líka markatöluna og eru komnir úr mínus 6 niður í mínus 2.
Eyjamenn falla niður það 9 úr 8 sætinu og eru komnir með mínus 8 í markatölu.
Vondur dagur
Ætlaði að setja þetta á Sverri Pál Hjaltsted sem sást ekki í leiknum en Eiður Aron fær þetta fyrir atvikið sem er lýst hér í atvik dálkinum.
Dómarinn - 7
La la dómgæsla. Spurning um hvort að eitt markið af þeim þremur sem dæmt var af vegna rangstæðu hefði átt að standa. Einnig var línan óljós framan af í leiknum. Fær hinsvegar 7 og hækkar þar með í einkunn, fyrir að taka eftir því þegar Eiður Aron brýtur á Kjartani Má




