Fotbolti.net
@fotboltinetFótbolti.net
Fótbolti.net
Vestri
Vestri
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
2 - 2
ÍA
ÍA
0 - 143' Viktor JónssonGustav Kjeldsen 53'1 - 11 - 263' Johannes Björn VallPontus Lindgren (sjm) 66'2 - 2
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Leik lokið!
Jöfnum og spennandi leik lokið hér á Olísvellinum á Ísafirði. Það var aldrei dauð stund og skiptust bæði lið á að sækja. Undir lokinn lágu heimamenn til baka og beittu skyndisóknum enda einum manni færri.
ÍA
90. mín
Gult spjald

Indriði Áki Þorláksson

90. mín
Skagamenn fá hornspyrnu sem endar með að Viktor skallar yfir.
88. mín
Deniz Yaldir með krampa og Arnór Smárason kallar Skagamenn til liðsfundar á miðjunni meðan það er hlúð að Yaldir.
85. mín
Rafael með góða vörslu. Steinar með fyrirgjöf sem endar hjá Arnleifi sem er með ágætis skot. Steinar búinn að vera öflugur síðan hann kom inn á.
78. mín
Rosalegt færi hjá Skagamönnum. Rafael fer í skógarhlaup og fær boltann yfir sig. Steinar móttekur boltann einn og óvaldaður í teignum og rennir honum fyrir en þar er enginn Skagamaður og Vestri hreinsar boltann í burtu.
Vestri
77. mín
InnSilas Dylan Songani
ÚtVladimir Tufegdzic
Vestri
77. mín
InnGuðmundur Arnar Svavarsson
ÚtIgnacio Gil Echevarria
76. mín
Vestramenn með stutta hornspyrnu Mikkel með góða sendingu fyrir en Nacho nær ekki til boltans. Árni kýlir hann í burtu.
ÍA
75. mín
InnBreki Þór Hermannsson
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
ÍA
75. mín
InnÁrmann Ingi Finnbogason
ÚtHlynur Sævar Jónsson
73. mín
Arnór Smárason með frábæra sendingu yfir allan völlinn á Arnleif sem rekur hann að endamörkum og setur hann fyrir. Vestramenn heppnir.
ÍA
72. mín
Gult spjald

Hlynur Sævar Jónsson

Hlynur alltof seinn í Deniz
Vestri
66. mín
Sjálfsmark!!

Pontus Lindgren (sjm)

Fall með fyrirgjöf frá hægri fyrir mitt mark Skagamanna. Pontus óheppinn og skallar hann beint inn.
ÍA
64. mín
InnSteinar Þorsteinsson
ÚtHaukur Andri Haraldsson
ÍA
63. mín
MAARK!

Johannes Björn Vall

Skagamenn fá hornspyrnu sem endar með föstu skoti Vall.
Vestri
61. mín
InnElvar Baldvinsson
ÚtIbrahima Balde
Vestri
55. mín
Rautt spjald

Gustav Kjeldsen

Gustav undirbýr sig að hreinsa boltann en Viktor er mættur með hausinn aftur.
Vestri
53. mín
MAARK!

Gustav Kjeldsen

Deniz með aukaspyrnuna á fjær á Morten sem skallar hann fyrir og Gustav mættur og stangar hann inn
ÍA
52. mín
Gult spjald

Jón Gísli Eyland Gíslason

Rekur hendina í andlitið á Deniz aukaspyrna á hættulegum stað
50. mín
Mikkel með annað hættulegt skot sem endar framhjá.
48. mín
Vestri í stórhættulegri sókn boltinn virðist fara yfir línuna. Mikkel skýtur á markið og Árni Marinó virðist missa hann inn.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleikur nokkuð fjörugur. Bæði lið skiptust á að sækja og skapa sér hættuleg færi. Töluverður hiti og barátta er í leiknum og bæði lið einbeitt að sækja til sigurs.
ÍA
43. mín
MAARK!

Viktor Jónsson

Arnleifur með glæsilega fyrirgjöf frá vinstri beint á hausinn á Viktori sem stýrir honum snyrtilega í fjær hornið.
Vestri
34. mín
Gult spjald

Gustav Kjeldsen

Hættuspark. Gustav nær að hreinsa boltann en Viktor gefur ekkert eftir og er mættur með hausinn í boltann. Óviljaverk.
31. mín
Heimamenn hættulegir. Mikkel kominn inn á teig, Johannes Vall kemst fyrir og hreinsar.
Vestri
28. mín
Gult spjald

Elmar Atli Garðarsson

Endar á að dómari leiksins gefur fyrirliða Vestra óskiljanlegt gult spjald fyrir að reyna róa menn niður.
25. mín
Fatai leikmaður Vestra tekinn niður. Dómari leiksins leyfir leiknum að halda áfram sem endar með hættulegri fyrirgjöf Jóns Gísla. Eftir það virðist leikurinn leysast upp í vitleysu. Hlynur Sævar liggur niðri heldur um kviðinn.
22. mín
Vandræði á útsendingu
OZ virðist ekki ná að streyma útsendingunni og stefnir ekki í að það náist.
20. mín
Stórhættuleg sókn Vestra
Stórhættuleg sókn Vestra. Deniz Yaldir sloppinn í gegn en Hlynur rennir sér fyrir hann og bjargar málunum.
18. mín
Fyrstu 15 búnar að vera nokkuð fjörugar bæði lið skiptast á að sækja í bland við nokkur kröftug einvígi. Skagamenn búnir að fá tvær aukaspyrnur á álitlegum stöðum en Vestramenn búnir að eiga nokkra hættulegar fyrirgjafir.
12. mín
Önnur hornspyrna Skagamanna
8. mín
Kröftug byrjun
Bæði lið skiptast á að sækja og gefa ekki tommu eftir.
3. mín
Heimamenn með ágætis færi sem endar með því að Morten skýtur yfir.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað! Gestirnir byrja með boltann.
Fyrir leik
Leikurinn er sýndur beint á Youtube
Fyrir leik
Aron Jóhannsson spáir
Spámaður umferðarinnar á Fótbolta.net er Aron Jóhannsson leikmaður Fram. Vestri 2 - 1 ÍA Hátt, langt, tæklingar, öskur og læti. Allir sem elska gamla skólann verða að horfa á þennan. ÍA brenndi sig á því að reyna að spila boltanum á ónýtum velli í fyrstu umferð, því verður kastað út um gluggann á leiðinni vestur því þeir eru að fara mæta særðu liði Davíðs Smára og þú mætir ekki með eitthvað fancy kjaftæði þangað. Aron Jóhannsson.
Fyrir leik
Úr 0 - 3 í 4 - 3 en endaði 3 - 0
Liðin mættust í Lengjubikarnum 11. febrúar síðastliðinn í mögnuðum leik í Akraneshöllinni. Vestri komst í 0 - 3 og þannig var staðan í hálfleik en ÍA sneri leiknum sér í vil og vann 4 - 3. Það urðu þó ekki endanleg úrslit því Fatai Gbadamosi sem spilaði með Vestra í leiknum hafði ekki fengið félagaskipti frá Kórdrengjum og því ólöglegur í leiknum. ÍA var því dæmdur 3 - 0 sigur. ÍA 4-3 Vestri 0-1 Benedikt Warén ('13) 0-2 Vladimir Tufegdzic ('21) 0-3 Benedikt Warén ('44) 1-3 Viktor Jónsson ('58) 2-3 Haukur Andri Haraldsson ('63) 3-3 Viktor Jónsson ('71) 4-3 Gísli Laxdal Unnarsson ('85)
Fyrir leik
Einu liðin án stiga
Fyrir leikinn í dag eru Vestri og ÍA einu tvö liðin sem eru stigalaus í deildinni í sumar. Heimamenn í vestra hófu leik í Boganum á Akureyri fyrir viku síðan og töpuðu þar 2 - 1 fyrir Þór. Skagamenn fengu Grindavík í heimsókn fyrir rétt rúmri viku og töpuðu þar 2 - 0. Það er því ljóst að annað liðið, eða bæði, fær sín fyrstu stig í sumar.
Fyrir leik
Dómarateymið
Arnar Ingi Ingvarsson dæmir leikinn í dag. Hann er með þá Daníel Inga Þórisson og Guðna Frey Ingvarsson sér til aðstoðar á línunum. Enginn skiltadómari er í dag en KSÍ sendi Frosta Viðar Gunnarsson í leikinn til að hafa eftirlit með umgjörð og störfum dómara. Arnar Ingi dæmir í dag.
Fyrir leik
Leikdagur á Ísafirði
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Olísvellinum á Ísafirði. Hér mætast Vestri og ÍA í 2. umferð Lengjudeildar karla klukkan 14:00 í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.