Fotbolti.net
Besta deildin
@danielmagg77Daníel Smári Magnússon
Daníel Smári Magnússon
KA
KA
Besta-deild karla
Greifavöllurinn
Hellirigning, 6° hiti og logn
0 - 4
Valur
Valur
0 - 11' Adam Ægir Pálsson0 - 229' Aron Jóhannsson0 - 345' Andri Rúnar Bjarnason0 - 490' Adam Ægir Pálsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Miskunnarlausir Valsarar á Greifavellinum

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn voru einfaldlega betri á öllum sviðum leiksins. Þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Hefðu hæglega getað verið meira en 3-0 yfir og Arnar Grétarsson fékk skínandi frammistöðu frá flestum á vellinum.

Bestu leikmenn

1. Adam Ægir Pálsson (Valur)

Skoraði tvívegis og spilaði heilt yfir afburðavel.

2. Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)

Er potturinn og pannan í sóknarleik liðsins og flest fer í gegnum þennan ofboðslega hæfileikaríka leikmann. Algjör stoðsendingavél í dag.

Atvikið

Mark Arons Jóhannssonar var í hæsta gæðaflokki. Skottæknin uppá 10,5.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn fara á toppinn með 18 stig og KA menn sitja eftir í 4. sæti með 11 stig. Næstu leikir liðanna eru í Mjólkurbikarnum, en þar mæta Valsarar Grindvíkingum og KA fara í Kópavoginn og spila við HK.

Vondur dagur

Án þess að taka neitt af frábæru Valsliði, að þá var KA liðið hreint út sagt ömurlegt í fyrri hálfleik. Langt frá mönnum, arfaslakir á boltanum og andleysið algjört.

Dómarinn - 8

Helgi Mikael var bara flottur í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.