Fotbolti.net
Besta deildin
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Würth völlurinn
Það er vindur í lautinni, 7 gráður og skýjað á köflum
Fylkir
Fylkir
3 - 1
Fram
Fram
0 - 16' Albert HafsteinssonÓlafur Karl Finsen 34'1 - 1Óskar Borgþórsson 50'2 - 1Orri Sveinn Stefánsson 59'3 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Lautarferð á Wurth-vellinum

Hvað réði úrslitum?

Jöfnunarmark Fylkis í leiknum. Meiriháttar klaufaskapur í vörn Fram sem kom Fylki á lagið og eftir það einhvernveginn slepptu þeir aldrei tökunum. Fram var alveg með boltann og voru að reyna að sækja en Fylkismenn voru þéttir fyrir varnarlega og beittu svo skyndisóknum þegar færi gafst og gerðu það gríðarlega vel

Bestu leikmenn

1. Ólafur Karl Finsen

Þótt Óli Kalli sagði í viðtali við mig eftir leik að honum hefði þótt hann lélegur í leiknum að þá er ég ekki sammála því. Hann leiddi línu Fylkis vel og sýndi kraft í að setja jöfnunarmarkið

2. Ólafur Kristófer Helgason

Gerði vel það sem þurfti að gera í leiknum og varði vítaspyrnuna gríðarlega vel.

Atvikið

Jöfnunarmark Fylkis. Ólafur Karl og Orri Sigurjónsson kljást um boltann, Orri rennur til og Ólafur nýtir tækifærið og kemst einn á móti Ólafi Íshólm og átti ekki í nokkrum vandræðum með að skora þar. Þetta mark gerði það að verkum að Fylkismenn virtust fá trú á verkefnið.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn lyfta sér úr fallsæti upp í það 9. Sýndu góðan leik í dag og það hlýtur að gefa þeim kraft fyrir leik á móti Stjörnunni í næstu umferð. Fram sitja í 7. sæti deildarinnar og hafa ekki enn náð að halda hreinu í sumar. Það eitt og sér hlýtur að vera áhyggjuefni.

Vondur dagur

Set þetta á varnarleikinn hjá Orra í jöfnunarmarki Fylkis. Einnig sást lítið af Gumma Magg í leiknum.

Dómarinn - 7,5

Fínn leikur hjá Ívari Orra.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.