SKÝRSLAN: Þægilegt hjá HK í Keflavík
Hvað réði úrslitum?
Vildi HK þetta meira? Já sennilega er það ein ástæða. Leikurinn sem fótboltaleikur var ekkert frábær en HK gerði það sem þurfti. Á sama tíma gengur hvorki né rekur í leik Keflavíkur og fátt sem liðið bauð uppá sem verðskuldaði eitthvað annað en núll stig.
Bestu leikmenn
1. Örvar Eggertsson
Það er eitthvað swag yfir honum á velli þetta sumarið. Með sjálfstraustið í botni og það fer ekkert á milli mála að hann er að eiga sínu bestu daga.
2. Arnþór Ari Atlason
Átti miðjuna í dag og skoraði að auki. Er að finna sitt besta form og það er ekkert annað en gleðiefni fyrir HK
Atvikið
Aukaspyrnumark Örvars. Leikmaður með sjálfstraust stígur upp að beiðni þjálfara síns og klínir honum í hornið. Ómar Ingi þjálfari HK sagði mér eftir leik að ákvörðunin að láta Örvar taka spyrnuna hefði komið af bekknum þegar þeir sáu hvar spyrnan var og það gaf heldur betur vel.
Hvað þýða úrslitin?
HK fer í 13 stig og situr í 4.sæti deildarinnar. Á sama tíma situr Keflavík í 11. sæti aðeins markahlutfalli á undan botnliði KR.
Vondur dagur
Liðsandi Keflavíkur. Horfandi á leikinn fannst mér eitthvað vera að hjá liði Keflavíkur. Vissulega er mikið um meiðsli og úrslitin að undanförnu hafa verið slæm. En mér fannst vanta einhvern neista og hreinlega skap á vellinum. Sama var upp á teningnum eftir leik í viðtali við þjálfara liðsins. Það má vel vera að það sé ekki stíll Sigga Ragga en menn mega vera pirraðir yfir úrslitum, yfir frammstöðu liðs og þeirri staðreynd að liðið hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og þar að auki tapað öllum heimaleikjum sínum til þessa í mótinu,
Dómarinn - 8
Hef ekkert uppá Einar að klaga. Hans ákvarðanir voru réttar frá mér séð þó ekkert stórt hafi komið uppá.



