Fotbolti.net
Hákon Dagur Guðjónsson
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Heiðskýrt, S 8 m/s. Völlur ágætur
Vestri
Vestri
0 - 2
Grindavík
Grindavík
0 - 145' Óskar Örn Hauksson0 - 284' Óskar Örn Hauksson (víti)Fatai Adebowale Gbadamosi 86'
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Grindavík með öruggan sigur á Vestra

Hvað réði úrslitum?

Það er einfalt, mörkin hans Óskars. Fyrra markið kemur á frábærum tíma rétt fyrir hálfleik þegar það hafði verið lítið að frétta lengi vel hjá Grindavík. Með vindinn í bakið í seinni hálfleik þá voru Grindvíkingar langt komnir með að taka stigin þrjú heim strax þar.

Bestu leikmenn

1. Óskar Örn Hauksson

Maðurinn er gæði út í gegn, hefur sýnt það í áranna rás. Stingur upp hausnum á mikilvægum augnablikum og er þyngdar sinnar virði í gulli.

2. Dagur Hammer Gunnarsson

Átti fína spretti í leiknum og leggur upp fyrsta markið snyrtilega fyrir Óskar.

Atvikið

Vítið sem Grindavík fær í seinni hálfleik drepur leikinn og sendir stigin þrjú suður. Varnarleikurinn var í besta falli klaufalegur hjá Gustav Kjeldsen

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík skellir sér á toppinn ásamt Aftureldingu og Fjölni og líta vel út fyrir komandi leiki. Vestramenn eru ennþá sigurlausir og verða að fara að sigla heim sigrum ef þeir ætla að skipta einhverju máli í þessari deild.

Vondur dagur

Fatai Adebowale Gbadamosi. Missir hausinn algjörlega og lætur reka sig útaf fyrir kjaftbrúk þegar boltinn er ekki í leik. Gjörsamlega óafsakanlegt og ófagmanlegt.

Dómarinn - 8

Fór lítið fyrir Arnari í dag sem er alltaf góðs viti. Bæði lið spiluðu af prúðmennsku framan af en þegar heimamenn æstust eftir seinna markið höndlaði Arnar það bara vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.