SKÝRSLAN: Keflavík í átta liða úrslit í fyrsta sinn síðan 2007
Hvað réði úrslitum?
Keflavík nýtti sína sénsa og spilaði af skynsemi heilt yfir. Héldu út fyrri hálfleikinn gegn vindinum og hleyptu gestunum ekkert í nein dauðafæri. Í seinni hálfleik voru þær skynsamar í sinu uppspili og sprengdu leikinn upp á réttu augnabliki. Vissulega hefði dauðafærið sem Hulda Björg fékk rétt á undan fyrra marki Keflavíkur getað breytt gangi leiksins en víkjum að því síðar.
Bestu leikmenn
1. Sandra Voitane
Mark og átti lykilsendingu í seinna marki Keflavíkur. Hefði átt að vera búin að skora fyrr í leiknum þegar hún ákveð að senda frekar en að skjóta í upplögðu marktækifæri. En stendur uppi með heiðurinn kona leiksins hjá mér.
2. Anita Lind Daníelsdóttir
Miðvarðarpar Keflavíkur var virkilega sterkt í dag eins og reyndar liðið allt. Aníta fær sig nefnda fyrir þær báðar en fleiri væri hægt að tína til. Madison Elise Wolfbauer og Linli Tu frábærar sömuleiðis.
Atvikið
57. - 58.mínúta leiksins. Þór/KA fær dauðafæri eftir hornspyrnu sem dettur niður í markteignum en Hulda Björg Jónsdóttir hitti ekki markið. Markspyrna tekin og um mínútu síðar er boltinn í netinu á marki Þórs/KA. Keflavíkurkonur refsuðu gestunum þar grimmilega.
Hvað þýða úrslitin?
Bikarinn er ekki flókinn frekar en áður. Keflavík er áfram í keppninni en Þór/KA ekki. Ef ég hef ekki lesið vef KSÍ vitlaust þá er þetta í fyrsta sinn síðan árið 2007 sem kvennalið Keflavíkur kemst í átta liða úrslit bikarsins. Það ár gerðu þær reyndar gott betur og fóru alla leið í úrslit þar sem þær biðu lægri hlut fyrir KR. Í þjálfarateymi KR var Guðrún Jóna Kristjánsdóttir að aðstoða Helenu Ólafsdóttur á því tímabili. Sextán árum seinna er hún í sama hlutverki hjá Keflavík. Fyrirboði einhvers? Við sjáum til.
Vondur dagur
Lið Þórs/KA gekk erfiðlega að skapa sér afgerandi færi í dag heilt yfir. Jú þær fengu skotfæri og hálffæri hér og þar í gegnum leikinn en þrátt fyrir það fannst mér þær aldrei líklegar til þess að skora. Þangað til að Hulda Björg fær sitt dauðafæri. Sá steinn sem hún hefur fengið í magann þegar boltinn lá í netinu hinu megin. En áfram gakk.
Dómarinn - 7
Var voðalega lítið í sviðsljósinu Soffía með flautuna. Varð ekki var við að leikmenn væru mikið að tuða yfir dómum svona almennt og það hlýtur að vita á gott. Fínasti leikur frá mínu sjónarhorni.


