Fotbolti.net
Besta deildin
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Besta-deild karla
Würth völlurinn
Grenjandi rigning og 7 m/s
Fylkir
Fylkir
2 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 110' Alex Freyr HilmarssonOrri Sveinn Stefánsson 31'1 - 1Óskar Borgþórsson 54'2 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 443
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Prinsinn í Árbænum með bestu afmælisgjöfina

Hvað réði úrslitum?

Jafn og spennandi leikur við krefjandi aðstæður í vindi og rigningu. Rúnar Páll sagði að sitt lið hefði getað haldið boltanum betur en var ánægður með úrslitin. Hemmi Hreiðars var ánægður með spilamennsku síns lið en svekktur með úrslitin. Hlutirnir féllu með Fylki.

Bestu leikmenn

1. Orri Sveinn Stefánsson - Fylkir

Öflugur í vörninni, baráttuglaður og oft réttur maður á réttum stað. Skoraði að auki. Maður leiksins.

2. Óskar Borgþórsson - Fylkir

Þessi ungi og skemmtilegi leikmaður er með sjálfstraust og það skóp sigurmarkið í leiknum. Nokkrir aðrir eiga hrós skilið, til dæmis Pétur Bjarnason sem var öflugur og Birkir Eyþórsson sem lék sem hægri bakvörður og stóð sig vel.

Atvikið

Sigurmark Óskars. Lét vaða og haði lukkuna með sér í liði því boltinn breytti um stefnu af varnarmanni áður en hann fór í netið. Það er afmælisdagur Fylkis og vel við hæfi að sigurmarkið hafi komið frá 'prinsinum í Árbænum' eins og Viktor Lekve vallarþulur kallar hann.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn eru byrjaðir að safna stigum og hafa ekki tapað þremur leikjum í röð. Það þrátt fyrir að vera að glíma við meiðsli lykilmanna. Eyjamenn hafa tapað fimm leikjum í röð og það er dýrt að fá ekkert úr svona sex stiga leik.

Vondur dagur

Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV er í vandræðum. Stigin eru ekki að detta í hús. Til að bæta gráu ofan á svart eru menn að detta út. Eiður Aron Sigurbjörnsson meiddist í upphitun og Halldór Jón Sigurður Þórðarson fór af velli á börum í fyrri hálfleik. ÍBV er kaldasta lið deildarinnar og allt útlit fyrir að hörð fallbarátta verði raunveruleiki liðsins þetta sumarið.

Dómarinn - 10

Nákvæmlega ekkert yfir lögregluvarðstjóranum að kvarta. Steig ekki feilspor, leyfði hagnað á réttum stöðum og negldi spjöldin. Fyrirmyndar dómgæsla.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.