SKÝRSLAN: FH komu þrisvar sinnum til baka í Kartöflugarðinum
Hvað réði úrslitum?
Erfitt að segja eitthvað eitt en varnarleikur HK var ekki upp á marga fiska. Allt of mörg skot og marktækifæri sem FH fengu. FH hefði alveg getað skorað fleiri mörk en fjögur.
Bestu leikmenn
1. Úlfur Ágúst Björnsson
Átti stórkostlegan leik. Skoraði tvö mörk og meðal annars sigurmarkið sem skóp þennan sigur. Ógnaði mjög mikið með krafta sínum og hraða í kvöld og var öflugur undir lokin þegar FH voru að halda þetta út.
2. Davíð Snær Jóhannason
Var í allt í öll í sóknarleik FH og átti meira og minna þátt í öllum mörkum FH á einhvern hátt. Hefði getað verið Gyrðir sem setti tvö en ég vel Davíð því hann spilaði 90 mínútur en ekki Gyrðir.
Atvikið
Auðvitað bara sigurmarkið. Fyrsta skiptið í leiknum sem HK lentu undir í leiknum og það reyndist vera sigurmarkið. Ætla að gefa markinu hans Eyþór Wöhler líka honorable mention. Sturlað mark!
Hvað þýða úrslitin?
FH fara upp fyrir HK í fjórða sætið og eru þremur stigum fyrir aftan Val sem þeir eiga í næsta leik. HK fara hinsvegar niður í fimmta sætið og missa FH fram fyrir sig.
Vondur dagur
Erfitt að velja einhvern einn leikmann. Varnarleikur HK var auðvitað bara ekki upp á marga fiska. FH skoruðu fjögur en þau hefðu alveg getað verið fleiri þar sem varnarlínan var eins og gatasigti á köflum. Ekki hægt að velja einhvern einn þar sem varnarlínan var bara jafn léleg í alla staði.
Dómarinn - 8
Bara mjög góður leikur hjá Erlendi. Ekki mikið af stórum atvikum fyri rutan kannski þriðja markið og vörsluna hjá Arnari í lokin. Að mínu mati við fyrstu sín voru þetta hárréttar ákvarðanir hjá dómarateyminu.




