Leik lokið!
ÍBV með sannfærandi sigur í kvöld
90. mín
ÍBV er að sigla þessu í höfn
90. mín
8 mínutum bætt við leikinn
90. mín
Felix með hörkuskot yfir mark HK
89. mín
Gult spjald
Arnþór Ari Atlason
Brot við hliðarlínu88. mín
Gult spjald
Oliver Heiðarsson
Kjánalegt brot á miðjum velli87. mín
InnBreki Ómarsson
ÚtHermann Þór Ragnarsson
80. mín
80. mín
InnAndri Már Harðarson
ÚtLeifur Andri Leifsson
80. mín
InnÍsak Aron Ómarsson
ÚtAtli Arnarson
80. mín
InnStefán Stefánsson
ÚtArnar Freyr Ólafsson
78. mín
Arnar Freyr meiddur eftir samstuð
72. mín
InnGuðjón Ernir Hrafnkelsson
ÚtArnar Breki Gunnarsson
71. mín
Eyþór enn og aftur með fantaspyrnu ú r aukaspyrnu sem Arnar ver vel
67. mín
Sverrir með skot en Arnar Freyr ver vel
66. mín
Komin dugleg þoka núna og erfitt að sjá hvað er að gerast
64. mín
HK vörnin vel opin núna. Guy Smith með langan bolta fram á Oliver sem finnur Sverri en skotið framhjá
61. mín
Arnar Breki með hörkuskot rétt framhjá eftir stutta aukaspyrnu
59. mín
InnHassan Jalloh
ÚtBrynjar Snær Pálsson
56. mín
Oliver í dauðafæri einn gegn markmanni en Arnar Freyr ver vel
49. mín
MAAAARK!
Felix Örn Friðriksson (stoðsending: Arnar Breki Gunnarsson)
Asskoti vel klárað meg hægri hjá Felix eftir góða sendingu Arnars Breka. 3-0!46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks í þokunni í Eyjum
45. mín
HK fá gott færi eftir aukaspyrnu en framhjá öllum
45. mín
Gult spjald
Elvis Okello Bwomono
Peysutog45. mín
MAAAARK!
Eyþór Daði Kjartansson
Kauði tekur spyrnuna sjálfur og neglir hann í hornið!! Mark beint úr aukaspyrnu.44. mín
ÍBV fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig
43. mín
Eyþór með gott skot en beint á markmann
42. mín
Virðist vera ökklinn og Leifur haltarar af velli
40. mín
Nú liggur Leifur eftir samstuð
36. mín
InnEiður Atli Rúnarsson
ÚtBirkir Valur Jónsson
Meiðsli aftur
31. mín
Skalli frá Sverri en beint á Arnar Frey í marki HK
25. mín
Oliver með hörkuskot en beint á markmann. Hermann með flotta sendingu á Oliver.
23. mín
Gult spjald
Richard King
Lítið sem ekkeert17. mín
InnEyþór Daði Kjartansson
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Alex meiddur
12. mín
Alex Freyr fer niður og líklega tognaður aftan í læri
7. mín
Mark!!
Sverrir Páll Hjaltested (stoðsending: Oliver Heiðarsson)
Fyrsta sókn leiksins endar með marki! Alex Freyr vinnur boltann, kemur honum á Oliver. Vel spilað hjá Oliver og Sverrir klárar vel af stuttu færi.1. mín
Flugeldar frá nýkrýndum meisturum í handbolta í byrjun leiks
1. mín
Leikur hafinn
HK fer af stað
Fyrir leik
Jæja skýrslan komin frá ÍBV - Eiður enn fjarverandi
Hjá ÍBV er fyrirliðinn Eiður Aron Sigurbjörnsson enn fjarverandi en hann missir af þriðja leiknum í röð. Halldór Jón Sigurður Þórðarson er einnig á meiðslalistanum en báðir eru þeir skráðir í liðsstjórn.
Hermann Þór Ragnarsson og Oliver Heiðarsson koma inn í byrjunarliðið. Hermann tók út leikbann í síðasta leik.
Hermann Þór Ragnarsson og Oliver Heiðarsson koma inn í byrjunarliðið. Hermann tók út leikbann í síðasta leik.
Fyrir leik
Eins og oft áður eru Eyjamenn ekki búnir að skila skýrslunni sinni á réttum tíma. Gerist ansi oft að þeirra skýrsla er ekki tilbúin klukkutíma fyrir leik.
Fyrir leik
Bakvörðurinn Ívar Örn Jónsson kemur inn í byrjunarlið HK frá síðasta leik en Marciano Aziz er ekki í leikmannahópi Kópavogsliðsins. Ívar missti af síðasta leik liðsins vegna meiðsla.
Ívar í byrjunarliði HK

Bakvörðurinn Ívar Örn Jónsson kemur inn í byrjunarlið HK frá síðasta leik en Marciano Aziz er ekki í leikmannahópi Kópavogsliðsins. Ívar missti af síðasta leik liðsins vegna meiðsla.
Fyrir leik
Bragi spáir jafntefli
Bragi Karl Bjarkason leikmaður ÍR, sem er langmarkahæstur í 2. deild, spáir í tíundu umferðina sem fer af stað í Vestmannaeyjum.

ÍBV 1 - 1 HK
Þetta er mjög mikill 1-1 leikur, verður mjög lokaður. Oliver Heiðars nær síðan að ógna með hraða sínum og krafti og setur eitt. Eyþór Wöhler heldur áfram trampólín æfingum og jafnar þetta með einum hjólhest.

„Það hefur ekki alveg verið stöðugleiki hjá okkur en við höfum verið inn í þessum leikjum, sérstaklega í dag. Frammistöðulega séð var ég ánægður með mikið," sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV eftir tap gegn Fylki í síðustu umferð. Það var fimmti ósigur ÍBV í röð.
„Við höfum sýnt að við getum unnið alla í þessari deild. Ef það kemur ágætis stöðugleiki og við náum upp góðri stemningu þá veit ég hvað við getum."
Hemmi var ánægður með mikið í síðasta leik

HK er í 6. sæti deildarinnar með 13 stig en þeir hafa tapað síðustu tveimur leikjum gegn FH og Víkingi.
ÍBV er í mjög slæmum málum á botni deildarinn með aðeins sex stig úr tveimur sigurleikjum gegn Breiðabliki heima og Keflavík úti. Þeir töpuðu öllum leikjum sínum í maí.
ÍBV er í mjög slæmum málum á botni deildarinn með aðeins sex stig úr tveimur sigurleikjum gegn Breiðabliki heima og Keflavík úti. Þeir töpuðu öllum leikjum sínum í maí.
Fyrir leik
Dómarateymið
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leikinn í dag og er með þau Gylfa Má Sigurðsson og Rúnu Kristínu Stefánsdóttur sér til aðstoðar á línunum. Gunnar Freyr Róbertsson er svo skiltadómari.
KSÍ sendir Árbæinginn skelegga Viðar Helgason til að hafa eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.

Vilhjálmur Alvar dæmir í dag.
KSÍ sendir Árbæinginn skelegga Viðar Helgason til að hafa eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.

Vilhjálmur Alvar dæmir í dag.
Fyrir leik
Leikdagur í Vestmannaeyjum
Góðan daginn og verið velkomin í beina textalýsingu frá Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.
Hér mætast í dag ÍBV og HK í Bestu-deild karla en leikurinn hefst klukkan 18:00.
Hér mætast í dag ÍBV og HK í Bestu-deild karla en leikurinn hefst klukkan 18:00.