Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KR
KR
Mjólkurbikar karla
Meistaravellir
Fjarskafagur völlur (grænn á litinn), smá næðingur og léttur úði. Fínt fótboltaveður.
2 - 1
Stjarnan
Stjarnan
Kristján Flóki Finnbogason 12'1 - 01 - 190' Baldur Logi GuðlaugssonÆgir Jarl Jónasson 103'2 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Ægi hleypt heim í Urriðaholtið?

Hvað réði úrslitum?

Skemmtilegur leikur þar sem bæði lið voru að sækja, allt annað að sjá þetta en það sem átti sér stað á sama velli fyrir rúmri viku síðan. Áhorfendur, sem létu vel í sér heyra sem er frábært, fengu nóg fyrir peninginn, 120 mínútur og þrjú góð mörk. Ægir Jarl, sem býr í Urriðaholti í Garðabæ, reyndist hetjan alveg eins og í deildarleiknum.

Bestu leikmenn

1. Finnur Tómas Pálmason

Geggjaður í leiknum, steig ekki feilspor og er að finna sig svo sannarlega vel í nýja leikkerfinu. Finnur er frábær varnarmaður sem er að koma aftur upp eftir öldudal.

2. Jóhannes Kristinn Bjarnason

Fagnaði U19 valinu með frábærri frammistöðu, hélt Ísaki Andra niðri og var flottur á báðum endum. Annar sem var virkilega góður í leiknum var Theodór Elmar sem sýnir reglulega þau löðrandi gæði sem hann býr yfir, unun að horfa á hann spila fótbolta.

Atvikið

Fyrst var það jöfnunarmark Baldurs, svo klúðrið hjá Aroni Þórði í lok venjulegs leiktíma en svo varð aðalatvikið virkilega gott sigurmark Ægis.

Hvað þýða úrslitin?

KR er komið í undanúrslit þar sem liðið mætir Víkingi á útivelli. Stjarnan er úr leik.

Vondur dagur

Aldrei gott að klikka á víti.

Dómarinn - 7,5

Flottur í dag, flæðið í leiknum gott.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.