Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
Þór
2
1
Selfoss
Alexander Már Þorláksson '7 1-0
Alexander Már Þorláksson '46 2-0
2-1 Gonzalo Zamorano '63
2-1 Guðmundur Tyrfingsson '82 , misnotað víti
16.06.2023  -  18:00
Þórsvöllur
Lengjudeild karla
Dómari: Guðgeir Einarsson
Maður leiksins: Alexander Már Þorláksson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
Fannar Daði Malmquist Gíslason ('62)
2. Elmar Þór Jónsson
3. Birgir Ómar Hlynsson ('74)
7. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
8. Nikola Kristinn Stojanovic ('74)
9. Alexander Már Þorláksson
10. Ion Perelló ('85)
16. Valdimar Daði Sævarsson
19. Ragnar Óli Ragnarsson
30. Bjarki Þór Viðarsson
- Meðalaldur 4 ár

Varamenn:
12. Ómar Castaldo Einarsson (m)
4. Hermann Helgi Rúnarsson ('74)
6. Kristján Atli Marteinsson ('74)
10. Aron Ingi Magnússon ('62)
15. Kristófer Kristjánsson
18. Rafnar Máni Gunnarsson ('85)
23. Ingimar Arnar Kristjánsson
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Sveinn Leó Bogason
Stefán Ingi Jóhannsson
Páll Hólm Sigurðarson
Sævar Eðvarðsson
Mindaugas Puzas

Gul spjöld:
Fannar Daði Malmquist Gíslason ('62)
Ion Perelló ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Sigur Þórs staðreynd! Viðtöl og skýrsla væntanleg á síðuna síðar í kvöld.
96. mín
Þetta er að renna út í sandinn.
95. mín
Síðasti séns fyrir Selfyssinga. ALlir komnir fram!
94. mín
Þór fær aukaspyrnu taka það bara stutt og fara út í horn.
91. mín
Bjarni Guðjón að detta í gegn en alltof lengi að athafna sig. Selfyssingar bjarga í horn.
91. mín
SEX MÍNÚTUM BÆTT VIÐ!
90. mín
Inn:Valdimar Jóhannsson (Selfoss) Út:Adrian Sanchez (Selfoss)
86. mín
Elmar Þór liggur eftir samstuð við Aron Birki. Kominn aftur inn á.
85. mín
Inn:Rafnar Máni Gunnarsson (Þór ) Út:Ion Perelló (Þór )
82. mín Misnotað víti!
Guðmundur Tyrfingsson (Selfoss)
SKÝTUR Í STÖNG! Aron fór í vitlaust horn.
80. mín
VÍTI!!! Guðmundur Tyrfings sleppur í gegn en Aron Birkir tekur hann niður.
74. mín
Inn:Kristján Atli Marteinsson (Þór ) Út:Birgir Ómar Hlynsson (Þór )
Tvöföld skipting hjá heimamönnum
74. mín
Inn:Hermann Helgi Rúnarsson (Þór ) Út:Nikola Kristinn Stojanovic (Þór )
72. mín
VÁ! Gonzalo Zamorano með gott skot en Aron Birkir vel á verði! Þarna vær séns fyrir Selfyssinga að jafna metin.
68. mín Gult spjald: Ion Perelló (Þór )
Peysutog
65. mín
Adrian Sanchez fer í bakið á Valdimar inn í teig og hann fellur. Stuðningsmenn Þórs vilja víti en ekkert dæmt.
63. mín MARK!
Gonzalo Zamorano (Selfoss)
Stoðsending: Guðmundur Tyrfingsson
MAAARK! Þetta mikilvæga þriðja mark dettur Selfoss megin! Guðmundur sendir Zamorano í gegn sem leggur boltann framhjá Aroni.
62. mín
Inn:Aron Ingi Magnússon (Þór ) Út:Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
Tekinnn hér af velli í kjölfarið.
62. mín Gult spjald: Fannar Daði Malmquist Gíslason (Þór )
Var í einvherju veseni með skóna sína og fór útaf, ákvað að fara aftur inn á og fær gult spjald fyrir það.
59. mín
Skemmtilegt einvígi hér hjá Þór Llorens og Valdimar Daða. Þór fór fyrst illa með Valdimar en hann náði svo að hefna fyrir það sem endaði með því að Llorens reif Valdimar niður.
57. mín
Fannar Daði með fína takta og nær skoti en Stefán Þór ver í horn.
54. mín Gult spjald: Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss)
Bara reyna stöðva skyndisókn.
50. mín
Inn:Þorlákur Breki Þ. Baxter (Selfoss) Út:Aron Einarsson (Selfoss)
50. mín
Inn:Ingvi Rafn Óskarsson (Selfoss) Út:Aron Fannar Birgisson (Selfoss)
46. mín MARK!
Alexander Már Þorláksson (Þór )
Stoðsending: Elmar Þór Jónsson
MAAARK! 30 SEK! Elmar kemst upp að endalínu og sendir boltann beint á pönnuna á Alexander!
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
46. mín
Lítur ekki vel út með hann Reyni. Lá í nokkrar mínútur á hliðarlínunni eftir að hafa farið meiddur af velli, menn reyndu að styðja hann á bekkinn en hann lagðist bara aftur niður. Hann var að fara í þessum skrifuðu orðum með sjúkrabíl. Talað um að þetta sé höfuðhögg.
45. mín
Hálfleikur
45. mín
Tvær mínútur i viðbót
43. mín
Selfoss fær aukaspyrnu Fyrirgjöf sem Þórsarar koma í burtu.
38. mín
Inn:Ívan Breki Sigurðsson (Selfoss) Út:Reynir Freyr Sveinsson (Selfoss)
Ívan Breki kemur inn fyrir Reyni.
37. mín
Valdimar Daði og Reynir Freyr Sveinsson lenda hér í samstuði, Reynir liggur eftir. Hann er að fara af velli.
33. mín
Elmar Þór Jónsson með góða fyrirgjöf en Valdimar Daði kemur stóru tánni ekki í boltann.
33. mín
ARON BIRKIR! Aron virkilega heppinn þarna. Þórsarar spila á milli sín í öftustu línu, Aron fær boltann og er lengi að athafna sig, Aron Fannar Birgisson kemst fyrir sendingu frá nafna sínum en markvörður Þórs nær að redda sér.
29. mín
Valdimar Daði með skallann eftir hornspyrnu. Boltinn á leið í fjærhornið en Þór Llorens nær að bjarga á síðustu stundu.
27. mín
Þór fær hornspyrnu Engin hætta. Selfoss fær markspyrnu
25. mín
Selfyssingar með öll völd á vellinum en gengur illa að skapa færin.
18. mín
Fínn séns hjá Gary en hann hittir boltann illa, Aron Birkir slær boltann út.
17. mín
Rólegar síðustu mínútur. Gestirnir verið meira með boltann en Þorsarar reyna beita skyndisóknum.
12. mín
Össh Þarna hefði getað orðið skrautlegt sjálfsmark. Birgir Ómar ætlar að hreinsa frá en hittir boltann illa og hann fer á Aron Birki sem þarf að stökkva upp til að grípa boltann.
9. mín
Selfoss fær aukaspyrnu, fínasta skotfæri. Þór Llorens með skotið í vegginn.
7. mín MARK!
Alexander Már Þorláksson (Þór )
Stoðsending: Fannar Daði Malmquist Gíslason
MAAAARK! Fannar Daði með fyrirgjöfina úr hornspyrnu á nærstöngina þar sem Alexander stendur og nær að stýra boltanum í netið með höfðinu.
4. mín
FÆRI! Frábær fyrirgjöfhjá Guðmundi Tyrfings beint á kollinn á Gary Martin en skallinn rétt framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn koma þessu af stað.
Fyrir leik
Þetta er að bresta á Liðin að ganga út á völl
Fyrir leik
Byrjunarliðin Það eru fjórar breytingar á liði Þórs sem steinlá gegn Þrótti í síðustu umferð. Elmar Þór Jónsson, Birgir Ómar Hlynsson, Nikola Krstinn Stojanovic og Fannar Daði Malmquist koma inn. Akseli Kalermo, Aron Ingi Magnússon, Vilhelm Ottó Biering og Ingimar Arnar Kristjánsson koma inn. Aron og Ingimar eru á bekknum.

Það eru tvær breytingar á liði Selfoss eftir jafntefli í Njarðvík. Jón Vignir Pétursson og Gonzalo Zamorano koma inn. Ingvi Rafn Óskarsson og Valdimar Jóhannsson setjast á bekkinn.
Þórsarar verða vel vökvaðir
Fyrir leik
Dómarateymið Guðgeir Einarsson verður með flautuna hér í kvöld. Nafnarnir Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage og Sveinn Þórður Þórðarson eru honum til aðstoðar. Sverrir Gunnar Pálmason er eftirlitsmaður KSÍ.

Guðgeir Einarsson
Fyrir leik
Selfoss sótti sigur hingað fyrir rúmu ári síðan en þá endaði leikurinn 2-0. Gonzalo Zamorano og Hrvoje Tokic skoruðu mörkin. Tokic er horfinn á braut en Zamorano hefur tekið þátt í fjórum leikjum til þessa en á enn eftir að skora.
Gonzalo Zamorano
Fyrir leik
3. sætið í boði! Selfoss er í 5. sæti og Þór í sætinu fyrir neðan. Selfoss dugir jafntefli til að hoppa upp í 3. sæti en Þór þarf sigur til þess. Bæði lið misstigu sig í síðustu umferð en Þór steinlá í Laugardalnum 3-0 gegn Þrótti á meðan Selfoss gerði 1-1 jafntefli í Njarðvík.
Fyrir leik
Leikurinn er sýndur beint á Youtube
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Góða kvöldið Verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Þórs og Selfoss í Lengjudeildinni. Leikurinn fer fram á Þórsvelli á Akureyri.
Byrjunarlið:
1. Stefán Þór Ágústsson (m)
3. Reynir Freyr Sveinsson ('38)
5. Jón Vignir Pétursson (f)
6. Adrian Sanchez ('90)
9. Aron Fannar Birgisson ('50)
10. Gary Martin
19. Gonzalo Zamorano
20. Guðmundur Tyrfingsson (f)
21. Aron Einarsson ('50)
22. Þorsteinn Aron Antonsson
23. Þór Llorens Þórðarson
- Meðalaldur 6 ár

Varamenn:
12. Arnór Elí Kjartansson (m)
2. Ívan Breki Sigurðsson ('38)
4. Oskar Wasilewski
8. Ingvi Rafn Óskarsson ('50)
10. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('50)
15. Alexander Clive Vokes
17. Valdimar Jóhannsson ('90)
77. Hrannar Snær Magnússon
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Dean Martin (Þ)
Ingi Rafn Ingibergsson
Þorkell Ingi Sigurðsson

Gul spjöld:
Ívan Breki Sigurðsson ('54)

Rauð spjöld: