Fotbolti.net
Mist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
Mjólkurbikar kvenna
Kaplakrikavöllur
Skýjað, örlétt gola og blautur völlur.
FH
FH
1 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 155' Sigdís Eva BárðardóttirHildigunnur Ýr Benediktsdóttir (víti) 67'1 - 11 - 284' Sigdís Eva Bárðardóttir
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 924 - Áhorfendamet á kvennaleik í Kaplakrika
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Bikar-Sigdís hetjan og Víkingar á leið í úrslit í fyrsta sinn

Hvað réði úrslitum?

FH-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru sterkari aðilinn lengst framan af fyrri hálfleik. Án þess þó að ná að skora (löglegt mark). Vel undirbúnir og óhræddir Víkingar unnu sig betur og betur inn í leikinn og fótuðu sig betur gegn FH-ingum í síðari hálfleiknum. Ferskir fætur sem komu inn af Víkingsbekknum áttu stóran þátt í sigrinum og Víkingar gáfu í frekar en hitt þegar á leið. Færanýtingin var svo frábær hjá Bikar-Sigdísi sem skoraði bæði mörk Víkinga.

Bestu leikmenn

1. Sigdís Eva Bárðardóttir

Sigdís elskar að skora mörk og sú er í stuði. Líkt og í síðasta bikarleik skoraði hún bæði mörk Víkinga gegn liði í efstu deild. Bæði mörkin skoraði hún eftir gott hlaup á fjærstöngina eftir fyrirgjöf frá hægri. Einfalt en árangursríkt. Sigdís er búin að eiga frábært sumar og var verðkuldað valin í U19 ára landsliðið þrátt fyrir að vera enn bara 16 ára gömul.

2. Emma Steinsen

Hér væri hægt að setja þónokkur nöfn en Emma gerði gríðarlega vel gegn einum besta leikmanni Bestu deildarinnar, Mackenzie Marie George. Hún kórónaði stórgóðan leik svo með stoðsendingu í sigurmarki Víkinga.

Atvikið

Sigurmarkið á 84. mínútu. Sigdís skallar fyrirgjöf Emmu Steinsen í markið og kemur Víkingum yfir hér á lokamínútunum!

Hvað þýða úrslitin?

Það er mjög einfalt. Víkingar leika til bikarúrslita í fyrsta sinn þann 12. ágúst næstkomandi. Það kemur í ljós á morgun hvort þær mæti þar Stjörnunni eða Breiðablik.

Vondur dagur

Það er hrikalegt að komast alla leið í undanúrslit en þurfa svo að sætta sig við tap fyrir framan fulla stúku á heimavelli. Það var ekki annað hægt en að finna til með FH-ingum enda vonbrigðin augljós í leikslok. Aldís Guðlaugsdóttir hefur verið einn besti markmaður landsins á tímabilinu en hún gerði sjaldséð mistök í fyrra marki Víkinga. Ótrúlega súrt fyrir þennan efnilega markvörð en svona mistök vilja því miður síður gleymast heldur en vond færanýting eða mistök á hinum enda vallarins.

Dómarinn - 7

Þetta er einn af þessum leikjum þar sem er erfitt að gefa einkunn því það voru nokkur vafaatriði sem þyrfti að skoða betur í endursýningum til að meta. Bæði lið vildu vítaspyrnur og mark var dæmt af FH í fyrri hálfleik. Án þess að hafa séð endursýningar af atvikunum held ég nú samt að stóru atriðin hafi verið meira og minna rétt hjá tríóinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.