SKÝRSLAN: Þróttur nálgast umspilssæti
Hvað réði úrslitum?
Byrjum á því jákvæða. Barátta og vilji Þróttar í leiknum fleytti þeim ansi langt í kvöld. Spillir engu að nýta þau færi sem þú á annað borð færð og það gerðu Þróttarar í kvöld. Hvað Grindavík varðar vantaði ansi mikið uppá. Feilsendingar hægri vinstri sem annað hvort eyðilögðu góðar stöður eða gáfu hættuleg færi á þeim. Þegar öllu er á botninn hvolft segir máltækið að enginn spili betur en andstæðingurinn leyfi og er sigur Þróttar því fyllilega verðskuldaður.
Bestu leikmenn
1. Hinrik Harðarson
Skoraði gott mark og vann gríðarlega fyrir liðið. Margir fyrirkallaðir fyrir sitt hlutverk hjá liði Þróttar í kvöld en Hinrik hirðir þetta.
2. Sveinn Óli Guðnason
Þau fáu tækifæri sem Grindavík fékk var Sveinn til í að glíma við. Stýrði vörn sinni af röggsemi og greip inn í þegar á þurfti að halda.
Atvikið
Einn í gegn undir lok fyrri hálfleiks hefði Símon Logi getað breytt samhengi leiksins fyrir Grindavík. Sveinn mætti honum vel og þvingaði hann í vont skot sem ekki nýttist. Smá vendipunktur í leiknum fyrir mer.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur færist nær umspilssæti og situr í sjötta sæti með 13 stig jafnir Gróttu og stigi á eftir Grindavík sem situr í fjórða sæti.
Vondur dagur
Helgi Sigurðsson sem klórar sér í hausnum eftir þessa frammistöðu Grindavíkur. Lið sem ætlar sér upp getur ekki leyft sér þann lúxus að eiga svona dapra leiki á heimavelli og tapa þar stigum
Dómarinn - 6
Guðgeir átti bara ágætis leik heilt yfir. Línan stundum á flakki eins og verða vill en látum það liggja á milli hluta. Mér finnst bara pínu skorta upp á sjálfsöryggi hans sem dómara. Verður aldrei þannig að allt sé 100% rétt en dómari sem selur mér að hann sé 110% viss um að hann hafi rétt fyrir sér jafnvel þó hann hafi það ekki skorar alltaf stig hjá mér.


