Grindavík
1
1
Þór

0-1
Marc Rochester Sörensen
'64
Marko Vardic
'86
1-1
12.07.2023 - 18:00
Stakkavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: Ákveðin norðanátt, gosmökkurinn ekki langt undan en sólin skín
Dómari: Pétur Guðmundsson
Maður leiksins: Marc Rochester Sörensen
Stakkavíkurvöllur
Lengjudeild karla
Aðstæður: Ákveðin norðanátt, gosmökkurinn ekki langt undan en sólin skín
Dómari: Pétur Guðmundsson
Maður leiksins: Marc Rochester Sörensen
Byrjunarlið:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
('78)

Tómas Orri Róbertsson
Dagur Örn Fjeldsted
('78)

7. Kristófer Konráðsson
10. Einar Karl Ingvarsson (f)
('70)

10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Símon Logi Thasaphong

15. Freyr Jónsson
('60)

16. Marko Vardic

26. Sigurjón Rúnarsson
Varamenn:
6. Viktor Guðberg Hauksson
('60)

9. Edi Horvat
('70)

22. Lárus Orri Ólafsson
24. Ingólfur Hávarðarson
38. Martin Montipo
('78)

80. Alexander Veigar Þórarinsson
('78)

95. Dagur Traustason
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Helgi Sigurðsson (Þ)
Jósef Kristinn Jósefsson
Benóný Þórhallsson
Maciej Majewski
Milan Stefán Jankovic
Hávarður Gunnarsson
Beka Kaichanidis
Gul spjöld:
Freyr Jónsson ('44)
Einar Karl Ingvarsson ('58)
Símon Logi Thasaphong ('74)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Jafntefli niðurstaðan hér. Kannski ekki ósanngjörn úrslit heilt yfir en bæði lið væntanlega brjáluð að fá ekki meira úr þessum leik.
94. mín
Grindavík bjargar á línu
Aukaspyrna af löngu færi sem Aron Dagur heldur ekki.
Boltinn fyrir fætur Þórsara í teignum sem mokar boltanum í átt að marki en Grindvíkingar hreinsa á síðustu stundu.
Boltinn fyrir fætur Þórsara í teignum sem mokar boltanum í átt að marki en Grindvíkingar hreinsa á síðustu stundu.
92. mín
Valdimar Daði í ágætu færi í teig Grindavíkur. Sæbjörn Steinke kallar eftir yfirvegun og Valdimar hafði nóg af henni. Of mikla meira að segja, gaf sér full mikin tíma og varnarmenn komast fyrir.
86. mín
MARK!

Marko Vardic (Grindavík)
Heimamenn eru að jafna!
Marko á þetta skuldlaust, fær boltann í teignum vinstra megin og leikur inn á völlinn. Lætur svo vaða og boltinn krullast í netið óverjandi fyrir Aron Birki.
Marko á þetta skuldlaust, fær boltann í teignum vinstra megin og leikur inn á völlinn. Lætur svo vaða og boltinn krullast í netið óverjandi fyrir Aron Birki.
83. mín
Gult spjald: Elmar Þór Jónsson (Þór )

Brýtur af sér á miðjum vellinum. Uppsafnað frekar en nokkuð annað.
82. mín
Tíminn er að renna út fyrir Grindavík hægt og rólega.
Er Þór að fara að vinna sinn fyrsta útleik í sumar?
Sem stendur lítur út fyrir það.
Sem stendur lítur út fyrir það.
80. mín
Sóknarleikur Grindavíkur bitlaus
Þeir reyna tökum það ekki af þeim en lítið að koma út úr því.
Þeir reyna tökum það ekki af þeim en lítið að koma út úr því.
78. mín

Inn:Alexander Veigar Þórarinsson (Grindavík)
Út:Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Grindavík)
Gaman að sjá Alexander Veigar á vellinum á ný.
74. mín
Gult spjald: Símon Logi Thasaphong (Grindavík)

Fer niður í teignum. Pétur metur sem svo að um dýfu sé að ræða. Læt það liggja á milli hluta en Pétur hafði gott sjónarhorn. Í það minnsta talsvert betra en ég.
70. mín

Inn:Edi Horvat (Grindavík)
Út:Einar Karl Ingvarsson (Grindavík)
Edi ekki farið með himinskautum til þessa í mótinu. Verður breyting á því nú?
68. mín
Grindvíkingar hafa verið vaxandi í þessum síðari hálfleik og því er þetta algjört kjaftshögg fyrir þá.
Svo sem ekki það fyrsta sem þeir fá í sumar en þetta svíður væntanlega ansi mikið.
Svo sem ekki það fyrsta sem þeir fá í sumar en þetta svíður væntanlega ansi mikið.
64. mín
MARK!

Marc Rochester Sörensen (Þór )
Gestirnir taka forystuna
Bruna upp völlinn, lið Grindavíkur algjörlega á hælunum.
Boltinn gengur hratt milli manna og endar á Marc í teignum sem að klárar af stakri prýði úr teignum með vinstri fæti.
Boltinn gengur hratt milli manna og endar á Marc í teignum sem að klárar af stakri prýði úr teignum með vinstri fæti.

63. mín
Dagur Ingi böðlar sér inn á teiginn og er að vinna sig í færi þegar hann er stöðvaður, boltinn út á Viktor Guðberg sem freistar þess að komast framhjá varnarmanni en er dæmdur brotlegur við litla hrifningu heimamanna á vellinum
60. mín

Inn:Viktor Guðberg Hauksson (Grindavík)
Út:Freyr Jónsson (Grindavík)
Skynsamleg skipting, Freyr á gulu.
58. mín
Gult spjald: Einar Karl Ingvarsson (Grindavík)
Stöðvar Þórsara í skyndisókn við vítateig Grindavíkur.
Trúir þessu ekki og fær 10 fyrir tjáningu á tilfinningum sínum á velli.

Stöðvar Þórsara í skyndisókn við vítateig Grindavíkur.
Trúir þessu ekki og fær 10 fyrir tjáningu á tilfinningum sínum á velli.
56. mín
Símon Logi verður að gera betur
Þórsarar skalla hornið frá en þó ekki langt. Boltinn aftur fyrir markið þar sem Símon Logi í algjöru dauðafæri á markteig en tekst á einhvern furðulegan hátt að skófla boltanum víðsfjarri markinu.
Alvöru færi sem verður að nýtast.
Alvöru færi sem verður að nýtast.
55. mín
Grindavík fær horn en þeir vilja víti.
Freyr Jónsson fer niður þegar hann reynir að skýla boltanum afturfyrir. Pétur flautar ekki og þar við situr.
Það var lykt af þessu þó.
Freyr Jónsson fer niður þegar hann reynir að skýla boltanum afturfyrir. Pétur flautar ekki og þar við situr.
Það var lykt af þessu þó.
50. mín
Aron Birkir með alvöru vörslu!
Einar Karl með hörkuskalla eftir hornið sem stefnir í markvinkilinn. Aron vel staðsettur og nær að slá boltann í annað horn.
Aftur hætta eftir seinna hornið en Aron aftur vel á verði og handsamar boltann.

45. mín
Þessum fyrri hálfleik er lokið. Heilt yfir nokkuð jafn en Þórsarar helst til líklegri. Spurning hvað þeir gera með vindinn í bakið í síðari hálfleik.
VIð komum aftur að vörmu spori.
Hálfleikur
Þessum fyrri hálfleik er lokið. Heilt yfir nokkuð jafn en Þórsarar helst til líklegri. Spurning hvað þeir gera með vindinn í bakið í síðari hálfleik.
VIð komum aftur að vörmu spori.
45. mín
Grindavík sækir og uppsker horn.
Einar Karl einn á fjærstöng en nær ekki að stýra boltanum á markið.
Einar Karl einn á fjærstöng en nær ekki að stýra boltanum á markið.
44. mín
Gult spjald: Freyr Jónsson (Grindavík)

Alltof seinn í Fannar Daða og uppsker réttilega gult.
Þór með aukaspyrnu á ágætum stað sem Aron Dagur hirðir.
Þór með aukaspyrnu á ágætum stað sem Aron Dagur hirðir.
40. mín
Marko Vardic er ekki sáttur við liðsfélaga sína.
Ekki sáttur með skort á hreyfanleika manna í liði Grindavíkur og lætur þá heyra það.
38. mín
Smá kraðak í teig Grindavíkur eftir aukaspyrnu Þórs en gestirnir koma boltanum frá.
Þó ekki langt, Þórsarar halda boltanum hátt á vellinum og vinna horn.
Þó ekki langt, Þórsarar halda boltanum hátt á vellinum og vinna horn.
35. mín
Símon Logi Thasaphong!
Eftir snarpa sókn Grindavíkur dettur boltinn fyrir fætur hans í markteignum nánast. Símon hikar ekkert og lætur vaða en boltinn smellur í þverslánni og niður.
Eftir snarpa sókn Grindavíkur dettur boltinn fyrir fætur hans í markteignum nánast. Símon hikar ekkert og lætur vaða en boltinn smellur í þverslánni og niður.
32. mín
Fannar Daði í frábæru færi eftir stungusendingu innfyrir vörn Grindavíkur, Aron Dagur mætir honum vel og ver.
Þetta er að opnast.
Þetta er að opnast.
31. mín
Kristófer Konráðs fær fínasta svæði úti til hægri til að skapa eitthvað fyrir Grindavík en hleypur sig út af vellinum.
29. mín
Aron Ingi í hörkufæri í teig Grindavíkur eftir langt innkast frá vinstri. Boltinn dettur vel fyrir hann við vítapunkt þar sem hann lætur vaða en varnarmaður hendir sér fyrir skot hans.
24. mín
Gestirnir vinna hornspyrnu.
Eða nei menn að stilla sér upp í teignum þegar upp úr krafsinu kemur að rangstæða hefur verið dæmd.
Hálf furðulegt atvik.
Eða nei menn að stilla sér upp í teignum þegar upp úr krafsinu kemur að rangstæða hefur verið dæmd.
Hálf furðulegt atvik.
23. mín
Lúmskur bolti fyrir mark Þórs frá vinstri fær að skoppa í teignum. Aron Birkir hikar á línunni og telur þann kost vænstan að slá boltann í horn.
Kýlir svo hornið frá.
Kýlir svo hornið frá.
20. mín
Sigurjón Rúnars fer niður í teignum eftir fyrirgjöf frá vinstri.
Frá mér séð gat ég ekki séð mikið í þessu, en ég hef svo sem haft rangt fyrir mér áður.
Frá mér séð gat ég ekki séð mikið í þessu, en ég hef svo sem haft rangt fyrir mér áður.
19. mín
Laglegt þríhyrningsspil Grindavíkur við teig Þórs, Dagur Ingi reynir að setja boltann svo fyrir en af varnarmanni og afturfyrir.
15. mín
Gestirnir hársbreidd frá því að sleppa þrír á einn, Aron Ingi dvaldi mögulega aðeins of lengi á boltanum og átti slaka sendingu eftir að gestirnir unnu boltann hátt á vellinum.
Gestirnir líklegri.
Gestirnir líklegri.
10. mín
Þetta er afskaplega rólegt, Gestirnir heilt yfir mögulega ögn skarpari en það má vart á milli sjá þó.
6. mín
Þórsarar leika gegn vindinum í fyrri hálfleik og hefur gengið betur að halda boltanum innan sinna raða til þessa.
1. mín
Tók ekki langan tíma fyrir fyrsta skotið að líta dagsins ljós og það er Þórsara. Marc Rochester með boltann fyrir markið úr aukaspyrnu en Fannar Daði að mér sýnist setur boltann vel yfir markið.
Fyrir leik
Vesen á leikmannahópi Grindavíkur.
Óskar Örn Hauksson er ennþá frá sem og Dagur Austmann. Marinó Axel er sömuleiðis að glíma við einhver meiðsli. Þá er Bjarki Aðalsteinsson í leikbanni í kvöld og því ekki með.
Óskar Örn Hauksson er ennþá frá sem og Dagur Austmann. Marinó Axel er sömuleiðis að glíma við einhver meiðsli. Þá er Bjarki Aðalsteinsson í leikbanni í kvöld og því ekki með.

Fyrir leik
Aðstæður
Völlurinn lítur bara nokkuð vel út hér í Grindavík, sólin skín en eins og stundum áður er vindurinn á talsverðri hraðferð. Ekkert sem að þarf að koma á óvart svo sem.
Völlurinn lítur bara nokkuð vel út hér í Grindavík, sólin skín en eins og stundum áður er vindurinn á talsverðri hraðferð. Ekkert sem að þarf að koma á óvart svo sem.
?? L E I K D A G U R ??
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) July 12, 2023
Grindavík ???? Þór Akureyri
?????- Stakkavíkurvöllur
????- 12. júlí 2023
??- 18:00
????- Lengjudeild karla
???? - Miðasala á https://t.co/lGR5PGP3cM
????- Börger í Gjánni frá kl. 17:15
???? - https://t.co/FziQ8sRHlv
????- Áfram Grindavík! #LiggurÍLoftinu
???? ???? pic.twitter.com/WP1EE91LTX
Fyrir leik
Dómarinn
Lög og regla munu vonandi ríkja á vellinum þetta kvöldið en dómarinn er Pétur Guðmundsson. Honum til aðstoðar eru þeir Guðmundur Ingi Bjarnason og Ragnar Arelíus Sveinsson. Jón Sigurjónsson er svo eftirlitsmaður KSÍ.

Fyrir leik
Eitthvað þarf undan að láta
Vinnur Grindavík loks á heimavelli? Aðeins einn heimasigur hefur litið dagsins ljós hjá Grindavík í deildinni þetta sumarið. Alls ekki tölfræði sem Grindvíkingar eru stoltir af og eru þeir eflaust staðráðnir í að fara að setja fleiri stig á töfluna á Stakkavíkurvellinum.
Þór á hin bóginn er lítið í því að vinna útileiki, en í fimm útileikjum til þessa á tímabilinu er uppskeran aðeins eitt stig.
Eitthvað þarf undan að láta í kvöld en það er spurning hvor "bölvunin" víkur í kvöld.

Munu menn sýna manndóm?
Þau voru nokkuð þung orðin sem Helgi Sigurðsson þjálfari Grindavíkur lét falla í viðtali við Fótbolta.net eftir tap gegn Þrótti á dögunum.
Eftir bjarta byrjun á mótinu hefur Grindavík fatast flugið svo ekki sé meira sagt og gengið verið ansi skrykkjótt.
Lykilmenn hafa vissulega verið frá vegna meiðsla og leikbanna en lið sem ætlar sér beina leið upp getur ekki treyst á ellefu leikmenn eingöngu til að af því verði.

Stöðugur óstöðugleiki.
Þessi fyrirsögn sem ber að líta hér fyrir ofan lýsir kannski sumrinu hjá Þór til þessa ágætlega. Að tengja saman sigra eða góðar frammistöður hefur ekki verið þeirra sterka hlið í sumar það sem af er. Og útivallarárangur, við víkjum að honum ögn síðar.
Það er ýmislegt spunnið í þetta Þórslið og finni þeir almennilegan takt og halda honum yfir einhvern tíma er þetta lið til alls líklegt.
Það er ýmislegt spunnið í þetta Þórslið og finni þeir almennilegan takt og halda honum yfir einhvern tíma er þetta lið til alls líklegt.

Byrjunarlið:
21. Aron Birkir Stefánsson (m)
Fannar Daði Malmquist Gíslason
('71)

2. Elmar Þór Jónsson

3. Birgir Ómar Hlynsson
5. Akseli Matias Kalermo
6. Kristján Atli Marteinsson
9. Alexander Már Þorláksson
10. Aron Ingi Magnússon
('71)

11. Marc Rochester Sörensen
('87)

19. Ragnar Óli Ragnarsson
23. Ingimar Arnar Kristjánsson
('60)
- Meðalaldur 8 ár

Varamenn:
12. Ómar Castaldo Einarsson (m)
7. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
('71)

8. Nikola Kristinn Stojanovic
('60)

15. Kristófer Kristjánsson
('87)

16. Valdimar Daði Sævarsson
('71)

18. Rafnar Máni Gunnarsson
30. Bjarki Þór Viðarsson
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Þorlákur Már Árnason (Þ)
Sveinn Leó Bogason
Jónas Leifur Sigursteinsson
Sævar Eðvarðsson
Guðrún Marín Viðarsdóttir
Gul spjöld:
Elmar Þór Jónsson ('83)
Rauð spjöld: