Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
banner
   lau 14. júní 2025 09:10
Elvar Geir Magnússon
Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Newcastle vill Pedro
Powerade
Gyökeres kyssir portúgalska bikarinn.
Gyökeres kyssir portúgalska bikarinn.
Mynd: EPA
Áhugi Newcastle á Pedro hefur aukist.
Áhugi Newcastle á Pedro hefur aukist.
Mynd: EPA
Fred er fyrrum leikmaður Manchester United.
Fred er fyrrum leikmaður Manchester United.
Mynd: EPA
HM félagsliða fer af stað í Bandaríkjunum á miðnætti þegar Al Ahly mætir Lionel Messi og félögum í Inter Miami. Fótboltinn tekur sér aldrei frí og það gerir slúðurpakkinn ekki heldur.

Arsenal hefur lagt fram upphafstilboð upp á 46,8 milljónir punda, með klásúlum um 8,5 milljónum punda í viðbót, til Sporting Lissabon fyrir sænska framherjann Viktor Gyökeres (27). (Record)

Það stefnir í að Paul Pogba (32) semji við Mónakó og taki fótboltaskóna fram að nýju eftir að hafa afplánað bann vegna lyfjabrots. (BBC)

Áhugi Newcastle á framherjanum Joao Pedro (23) hjá Brighton hefur aukist eftir að félagið frétti að Brasilíumaðurinn hefði áhuga á að koma til félagsins. (Telegraph)

Bayer Leverkusen er tilbúið að leggja fram tilboð í enska sóknarmiðjumanninn James McAtee (22) hjá Manchester City þegar félagaskiptaglugginn opnar aftur. (Sky Sports)

Napoli er að keppa við félög frá Sádi-Arabíu um kaup á úrúgvæska framherjanum Darwin Nunez (25) hjá Liverpool. (Fabrizio Romano)

Fenerbahce, undir stjórn Jose Mourinho, hefur áhuga á að fá enska hægri bakvörðinn Kyle Walker (35) frá Manchester City. Walker átti lánsdvöl hjá AC Milan sem gekk ekki að óskum. (Times)

Everton hefur áhuga á brasilíska miðjumanninum Fred (32) sem spilar nú hjá Fenerbahce. Flestir muna eftir Fred frá tíma hans með Manchester United. (Sozcu)

Franski framherjinn Thierno Barry (22) hjá Villarreal er einnig á óskalista Everton fyrir sumarið. (Times)

Aston Villa hefur reynt að fá spænska vængmanninn Jesus Rodriguez (19) frá Real Betis. (The Athletic)

Crystal Palace hefur áhuga á að fá Japhet Tanganga (26), miðvörð Millwall, til liðs við sig. Hann er sagður hafa 1,2 milljóna punda riftunarákvæði sem félög í ensku úrvalsdeildinni geta virkjað í sumar. Sunderland, Leeds United og Burnley eru einnig áhugasöm. (Express)

Nýr stjóri Tottenham, Thomas Frank, ætlar að reyna að fá kamerúnska vængmanninn Bryan Mbeumo (25) og framherjann Yoane Wissa (28) til Tottenham frá fyrrum félagi sínu, Brentford. (Guardian)

Rangers í Glasgow ætlar að leyfa nígeríska framherjaninum Cyriel Dessers (30) að ganga til liðs við AEK Aþenu. (Daily Record)

Roma hefur hafið viðræður við Brighton um að fá danska miðjumanninn Matt O'Riley (24). (Gazzetta)

Úlfarnir hafa áhuga á spænska miðjumanninum Fer Lopez (21) hjá Celta Vigo. (Sky Sports)

Eftir að hafa samið við Leroy Sane á frjálsri sölu hefur Galatasaray fundað með fulltrúum Ilkay Gundogan (34), miðjumanns Manchester City. Tyrkneska félagið vill fá þennan fyrrverandi þýska landsliðsmann. (Fanatik)

Manchester City er að fara að semja við franska framherjann Mahamadou Sangare (18) frá PSG. (RMC Sport)

Lazio hefur áhuga á að fá Ruben Loftus-Cheek (29) frá AC Milan. Stjóri Lazio er Maurizio Sarri, sem var stjóri hans hjá Chelsea á sínum tíma. (Daily Mai)

Marseille og Porto eru meðal félaga sem hafa áhuga á að fá sænska vængmanninn Roony Bardghji (19) frá FC Kaupmannahöfn. (Fabrizio Romano)
Athugasemdir