Leik lokið!
Ísland lýkur keppni á Evrópumótinu
Tóku einn sigur og töpuðu tveimur. Frakkland og Spánn klárlega bestu liðin í þessum riðli, en afrekið að komast á þetta mót er stórt. Íslenska liðið á skilið mikið lof fyrir að komast alla þessa leið og það er ljóst að framtíðin er björt. Áfram Ísland!


91. mín
Enn skapast hætta eftir fast leikatriði hjá Frakklandi. Fanney grípur boltann að lokum.
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
Þrjár síðustu mínútur Íslands á þessu móti.
90. mín
Gult spjald
Freyja Karín Þorvarðardóttir
89. mín
Allur vindur úr íslenska liðinu og þetta mark var á leiðinni.
89. mín
Og upp úr hornspyrnunni skorar Frakkland
Baby-Jordy Benera
Benera er ákveðnust í teignum og er fyrst í boltann. Hún skallar hann í netið og skorar þriðja mark Frakklands.88. mín
Marques með skot sem var að fara langt fram hjá markinu, en Fanney ver boltann fram hjá.
86. mín
Ribadeira alein inn á teignum eftir hornspyrnu en hún skallar fram hjá markinu. Algjört dauðafæri að bæta við þriðja markinu fyrir Frakka.
85. mín
Frakkarnir eru talsvert líklegri til að bæta við þriðja markinu en Ísland að jafna.
84. mín
Stórhætta!
Frakkar fá mjög gott færi eftir aukaspyrnu en Fanney Inga ver glæsilega!
83. mín
Inn Maelle Seguin
ÚtChloé Neller
83. mín
InnPauline Sierra
ÚtLou Bogaert
81. mín
InnÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
ÚtBergdís Sveinsdóttir
Þær sem komu að markinu fara hér af velli.
81. mín
InnFreyja Karín Þorvarðardóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
Þær sem komu að markinu fara hér af velli.
80. mín
Íslenska liðinu hefur gengið illa að ná stjórn á boltanum í síðari hálfleik og stelpurnar hafa ekki náð að skapa sér mikið.
79. mín
Gilbert með laflaust skot að marki sem Fanney handsamar.
76. mín
Það eru 434 áhorfendur á leiknum í kvöld, margir Íslendingar.
74. mín
Íslensku stuðningsmennirnir láta vel í sér heyra og hvetja liðið áfram.
72. mín
Gult spjald
Lou Bogaert
Fyrir leiðindi.71. mín
Ísabella Sara með frábæran sprett upp hægri vænginn og sækir innkast. Afar flottir taktar hjá þessum efnilega leikmanni.
70. mín
Fáum við jöfnunarmark?
Leikurinn er farinn að róast talsvert. Það er spurning hvort íslensku stelpurnar eigi eitthvað eftir á tankinum til að jafna leikinn. Það yrði mjög skemmtilegt að ná því.
67. mín
Inn Dona Scannapieco
ÚtAirine Fontaine
64. mín
Gult spjald
Snædís María Jörundsdóttir
Dómarinn beitti hagnaðarreglunni og Snædís fær svo gult spjald fyrir brot.63. mín
Hættulegt!
Baby-Jordy Benera með hörkuskot fyrir utan teig sem fer rétt fram hjá markinu.
61. mín
Emilía sýnir frábæra takta og á svo fyrirgjöf sem Ísabella nær ekki til. Boltinn dettur út fyrir Birnu Kristínu utan teigs og hún lætur bara vaða. Fínt skot en Marques ver það og heldur boltanum.
57. mín
Snædís á svo skotttilraun fyrir utan teig sem fer beint í varnarmann.
57. mín
Írena komin í góða stöðu en úrslitasendingin á Snædísi klikkar.
55. mín
Ribadeira snýr á Mikaelu og kemst í ágætis færi en Fanney nær að verja og halda boltanum. Skotið var laust.
54. mín
InnÍsabella Sara Tryggvadóttir
ÚtVigdís Lilja Kristjánsdóttir
50. mín
Vantar þessa frægu ró á boltann. Þýðir ekkert að vera senda boltann langt upp völlinn þegar það er enginn íslenskur leikmaður þar nálægt.
46. mín
Inn Fiona Liaigre
ÚtPauline Haugou
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
45. mín
Fyrri hálfleik lokið. Ágæt frammistaða hjá íslenska liðinu en það var vont að fá þetta annað mark á okkur í lok fyrri hálfleiks.
Möguleikar Íslands á að komast áfram eru svo gott sem engir, því miður.
45. mín
Þremur mínútum bætt við fyrri hálfleik
45. mín
Andskotans
Chloé Neller
Frakkar taka hornspyrnu út og senda boltann á Haelewyn. Hún sendir háloftabolta inn á teiginn og þar dettur hann einhvern veginn fyrir Neller sem skorar úr auðveldu færi. Ekki nægilega góður varnarleikur hjá íslenska liðinu.44. mín
Frakkar með hornspyrnu sem Fanney gerir vel í að kýla frá markinu.
39. mín
Vigdís Lilja virðist vera með góða tæklingu en það er flautað brot. Vigdís pirruð með þennan dóm.
37. mín
Núna þurfum við bara þrjú mörk í viðbót.
33. mín
Markaskorari Íslands
Bergdís er fædd árið 2006 og spilar með Víkingi. Afar efnilegur miðjumaður þarna á ferðinni.


32. mín
Gult spjald
Katla Tryggvadóttir
Veit ekki alveg fyrir hvað.32. mín
MARK!!!!!!!
Bergdís Sveinsdóttir (stoðsending: Snædís María Jörundsdóttir)
Geggjað mark hjá Bergdísi! Hún vinnur boltann, kemur honum á Snædísi og fær hann strax aftur. Hún heldur svo áfram í átt að vörninni og á frábært skot sem endar í markinu. Glæsilegt mark, hennar annað mark með U19 landsliðinu.29. mín
InnTara Elimbi Gilbert
Út Shana Chossenotte
29. mín
Alice Marques með skot af löngu færi en það fer yfir markið.
27. mín
Fyrsta markið komið
Louna Ribadeira
Haugou vinnur boltann af Sædísi við miðjan völlinn og finnur Ribadeira, fyrirliðann, í hlaupaleiðinn. Ribadeira gerir allt rétt og skorar fram hjá Fanneyju.
26. mín
Fín sókn hjá Íslandi og Emilía fær nokkuð gott færi, en skot hennar er ekki nægilega gott.
24. mín
Vigdís með góða fyrirgjöf en hún er aðeins of há fyrir Emilíu sem var inn á teignum. Flott spil hjá íslenska liðinu.
22. mín
Íslenska liðið þarf að skora sem fyrst ef það ætlar að eiga möguleika á því að fara upp úr riðlinum. Þetta er ansi erfitt verkefni.
22. mín
Baby-Jordy Benera - skemmtilegt nafn - tekur skot fyrir utan teig en það fer yfir markið.
20. mín
Neller vinnur boltann af Írenu og kemst í gott skotfæri, en það er þægilegt fyrir Fanneyju að verja skotið.
19. mín
Spánn kemst í 3-0
Spánn að rústa Tékklandi.
Úr leik Íslands og Spánar.
Úr leik Íslands og Spánar.18. mín
Katla við það að stela boltanum og koma sér í góða stöðu við vítateig Frakklands en hún missir hann aðeins of langt frá sér.
16. mín
Frakkland fær tvær hornspyrnur en þær ná ekki að gera neitt úr þeim.
14. mín
VÍTI????
Darraðadans í teignum eftir hornspyrnu Íslands. Snædísi Maríu er augljóslega ýtt en það er ekkert dæmt. Þetta var pjúra vítaspyrna að mínu mati, klár bakhrinding. Pólskur dómari leiksins, Ewa Augustyn, sá ekkert athugavert við þetta.
13. mín
Spánverjar komast í 2-0
Vont verður verra. Spánn komið í 2-0 gegn Tékklandi. Ísland þarf að vinna Frakkland með þremur mörkum, það er nokkuð ljóst.
12. mín
Emelía byrjar af krafti og reynir fyrirgjöf, en Marques í marki Frakka handsamar boltann.
11. mín
InnEmelía Óskarsdóttir
ÚtSigdís Eva Bárðardóttir
Sigdís getur ekki haldið áfram eftir að hafa fengið höfuðhögg. Emelía kemur inn á í hennar stað.


9. mín
Sigdís Eva liggur eftir og heldur um höfuð sitt.
8. mín
Bogaert í góðri fyrirgjafastöðu og sendir boltann fyrir, en hann fer aftur fyrir endamörk. Þetta var hættulegt en Frakkarnir eru að byrja betur og eru hættulegar.
8. mín
Chossenotte komin í mjög hættulega stöðu en nær ekki að taka boltann með sér.
5. mín
Ekki góð tíðindi
Spánverjar eru komnir yfir gegn Tékklandi. Það er ekki gott fyrir okkur Íslendinga. Ef Spánn vinnur sinn leik þá þýðir það að við þurfum að vinna Frakkland með þremur mörkum.
3. mín
Ribadeira með skot að marki fyrir utan teig, en Fanney grípur boltann örugglega. Þægilegt fyrir Valskonuna í markinu.
2. mín
Íslensku stuðningsmennirnir láta vel í sér heyra líkt og venjulega. U19 landsliðin okkar hafa fengið stórkostlegan stuðning í sumar.


1. mín
Þetta er farið af stað. Áfram Ísland!
0. mín
Íslenski þjóðsöngurinn að baki. Það heyrðist mjög vel í stelpunum okkar þegar þær sungu hann.
0. mín
Liðin að ganga út á völl og stemningin er að magnast.
0. mín
Uppstillingin

0. mín
Byrjunarliðið
Búið er að opinbera byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Frakklandi í kvöld.
Það er ein breyting á byrjunarliðinu frá sigrinum gegn Tékklandi í síðustu viku. Birna Kristín Björnsdóttir, bakvörður FH, kemur aftur inn í liðið í staðinn fyrir Eyrúnu Emblu Hjartadóttur.
Bergdís Sveinsdóttir og Sigdís Eva Bárðardóttir, leikmenn Víkings, sem komu inn í liðið fyrir síðasta leik gegn Tékklandi halda sæti sínu í liðinu.
Birna Kristín Björnsdóttir.
Birna Kristín Björnsdóttir.0. mín
Möguleiki á því að Ísland taki sex stig en detti úr leik
Það er komin upp ansi áhugaverð staða í riðlinum fyrir lokaumferðina en það er möguleiki á því að íslenska liðið endi með sex stig og fari samt ekki áfram.
Frakkland er með sex stig fyrir lokaumferðina eftir sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum en svo koma Ísland og Spánn með þrjú stig. Spánverjar mæta Tékklandi í kvöld og eru ansi sigurstranglegar í þeim leik.
Ísland þarf að öllum líkindum sigur gegn Frakklandi í kvöld til þess að komast áfram, þar sem það eru miklar líkur á því að Spánn vinni Tékkland. En ef Spánn tapar gegn Tékklandi þá dugir Íslandi jafntefli til að komast áfram. Ef Spánn gerir jafntefli, þá þarf Ísland samt sem áður að vinna.
Ef öll þrjú liðin enda með sex stig þá ræðst þetta á markatölu í innbyrðis viðureignum. Ísland tapaði 0-3 gegn Spáni í fyrsta leik og það gerir það að verkum að Ísland þarf að vinna með þriggja marka mun í kvöld ef öll liðin enda með sex stig.
Innbyrðis viðureignir:
1. Frakkland - 3 stig (2-0 í markatölu)
2. Spánn - 3 stig (3-2 í markatölu)
3. Ísland - 0 stig (0-3 í markatölu)
Ísland þarf þá helst að treysta á það að Tékkland stríði Spáni - af því að það verður erfitt að vinna Frakkland og hvað þá stórt - en báðir leikirnir hefjast klukkan 18:30 í kvöld.
Ísland þarf þá helst að treysta á það að Tékkland stríði Spáni - af því að það verður erfitt að vinna Frakkland og hvað þá stórt - en báðir leikirnir hefjast klukkan 18:30 í kvöld.0. mín
Katla: Með fullan fókus
Katla Tryggvadóttir, sem gegnir lykilhlutverki í liðinu, hefur fulla trú á að liðið geti náð góðum árangri gegn Frökkum.
„Þetta var gríðarlega góð tilfinning og mjög mikilvægt fyrir okkur að ná í þrjú stig.“
„Það hefur gengið vel og erum alveg búnar að ýta þessum sigri til hliðar og komnar með fullan fókus á mótum Frökkum. Við undirbúum okkur alltaf eins, við erum mjög spenntar fyrir þessu verkefni og höfum fulla trú á þessu,“ sagði Katla.
?????Katla Tryggvadóttir kom í stutt spjall eftir æfingu í dag.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) July 23, 2023
Ísland ???????? - Frakkland ????????
? Á morgun klukkan 18:30
???? Í beinni útsendingu á RÚV 2#dottir pic.twitter.com/2V1psMW8vN
0. mín
Margrét: Leikmenn elska að takast á við svona aðstæður
Ísland tapaði fyrsta leiknum gegn Spánverjum en lagði síðan Tékkland að velli, 2-0, í annarri umferð riðlakeppninnar.
Frakkar hafa unnið báða leiki sína til þessa en Ísland þarf líklega sigur til að eiga möguleika á að komast áfram. Jafntefli gæti dugað en þá þarf Tékkland að vinna Spánverja.
Margrét Magnúsdóttir, þjálfari landsliðsins, ræddi um leikinn:
„Það var auðvitað mikil ánægja með síðasta leik en eins og við töluðum um þá var mikilvægt hjá okkur að stilla okkur af og fókusa á næsta leik sem við höfum verið að gera.“
„Bara mjög vel. Áttum góðan dag í gær og fengu frídag með fjölskyldum sínum, svona lang flestar, en þetta var mjög góður dagur og þær eru ferskar.“
„Það er góð stemning í hópnum og erum búin að ná að undirbúa okkur vel. Þetta eru leikirnir sem við viljum spila og leikmenn elska að takast á við svona aðstæður og þessa leiki og það er það sem við ætlum að gera,“ sagði Margrét.
?????Margrét Magnúsdóttir kom í stutt spjall eftir æfingu í dag.
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) July 23, 2023
Ísland ???????? - Frakkland ????????
? Á morgun klukkan 18:30
???? Í beinni útsendingu á RÚV 2#dottir pic.twitter.com/n7NAUkxyIA
0. mín
Kemst Ísland áfram í undanúrslit?
Heil og sæl!
U19 landslið kvenna mætir Frakklandi í síðustu umferð riðlakeppninnar á lokakeppni EM í Belgíu.
Leikurinn skiptir gríðarlega miklu máli en Ísland setur stefnuna á að komast áfram. Íslenska liðið er jafnt Spáni á stigum með þrjú stig hvort en Frakkar efstir í riðlinum með sex stig.
Lokaumferð riðilsins:
18:30 Spánn - Tékkland
18:30 Frakkland - Ísland
Leikur Frakklands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2.
Leikur Frakklands og Íslands verður sýndur í beinni útsendingu á RÚV 2.


