Fotbolti.net
Besta deildin
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Besta-deild karla
HS Orku völlurinn
Þungskýjað, örlítill vindur og 11 stiga hiti.
Keflavík
Keflavík
3 - 4
KA
KA
Sindri Þór Guðmundsson 14'1 - 01 - 143' Bjarni Aðalsteinsson 1 - 245' Bjarni Aðalsteinsson Viktor Andri Hafþórsson 59'2 - 22 - 364' Sveinn Margeir HaukssonÁsgeir Páll Magnússon 72'3 - 33 - 473' Hallgrímur Mar Steingrímsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Markasúpa og mikil skemmtun þegar KA kom til Keflavíkur

Hvað réði úrslitum?

Keflavík var líklega betra liðið á vellinum fram undir lok fyrri hálfleiks og hefðu alveg getað verið með meira en 1-0 forystu. Tvö mörk af stuttu færi eftir hornspyrnur sneru dæminu við og eftir það var KA með yfirhöndina þó Keflavík hafi aldrei gefið þeim grið og jafnað metin í tvígang. Leikurinn var þannig að þetta gat alveg eins endað með jafntefli eða sigri heimamanna því mörkin gátu alltaf komið. Gríðarleg skemmtun fyrir áhorfendur en oft á tíðum var varnarleikur liðanna ekkert sérstakur.

Bestu leikmenn

1. Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA

Lagði upp þrjú mörk og skoraði svo geggjað mörk í slá og inn. Á sínum degi er Hallgrímur Mar snillingur í fótbolta og erfitt að stoppa hann. Þegar hann setti í gang í dag var hann allt í öllu.

2. Bjarni Aðalsteinsson, KA

Bjarni fékk að vera í svolítið öðruvísi hlutverkum í dag en vanalega og var mættur í teignum þegar Hallgrímur Mar tók hornspyrnur að þessu sinni. Hann leysti það hlutverk lystilega eins og besti framherji, var mættur til að setja boltann yfir marklínuna í tvígang. Örlögin gerðu honum svo grikk því meiðsli Ívars Arnar Árnasonar urðu til þess að Bjarni varð að spila miðvörð í seinni hálfleik svo tækifærin til að skora þrennuna komu ekki.

Atvikið

Það var ansi súrt fyrir KA-menn að sjá Ívar Örn Árnason þurfa að fara af velli í byrjun seinni hálfleiks eftir að reynt var að gera að meiðslum hans í hálfleik. Liðið er í vandræðum varnarlega fyrir og framundan risa leikir í Evrópukeppni. Það var vesen fyrir Dusan Brkovic að fá vegabréfsáritun til Bretlands og vonandi verður það betra í Írlandi í seinni leiknum gegn Dundalk. Á meðan Rodrigo Gomez er meiddur óvissa með Ívar Örn er ljóst að liðið þarf varnarmann áður en KA skilar inn leikmannalista fyrir Dundalk verkefnið á morgun. Nú þarf að bretta upp armar og vinna hratt!

Hvað þýða úrslitin?

Tap hjá Keflavík gerir ekkert fyrir þá og ljóst að þeir þurfa að drífa sig í gang ef stefnan er að sigla upp töfluna. Sigurinn gerir hinsvegar helling fyrir KA því eftir þetta kvöld er ljóst að þeir ganga að 4. sætinu vísu ef þeir vinna leikinn sem þeir eiga til góða sem er gegn FH. Það gerist á sama tíma og þeir eru komnir í úrslitaleik Mjólkurbikarsins og næsta Evrópuævintýri framundan gegn Dundalk á fimmtudaginn. Spennnandi tímar framundan ef þú styður KA!

Vondur dagur

Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari Keflavíkur hafði bara fengið einu sinni spjald á þjálfaraferlinum fyrir leikinn í dag en það var gult spjald. Rauða spjaldið í kvöld var því fyrsta rauða spjaldið á ferlinum og ljóst að hann verður í leikbanni í næsta leik. Ef það er rétt, sem Sigurður Ragnar sagði við mig eftir leik, að það eina sem hann gerði af sér hafi verið að öskra: ,,Hendi, sáuði ekki að boltinn fór í hendina á leikmanninum. Hvernig í ósköpunum sáuð þið þetta ekki?" þá verður að segja að það er ansi döpur niðurstaða hjá dómarateyminu að sýna honum rautt. Það verður að horfa í gegnum fingur sér þó menn hafi hátt, ef það sem þeir segja er ekki gróft og menn eru ekki ógnandi. Sé það rétt sem ég nefni hér að ofan, þá geri ég skilaboð dómara til fótboltaáhugafólks að mínum til dómara: Ekki tapa þér!

Dómarinn - 7

Mér fannst ekkert athugavert við dómgæsluna hjá Jóhanni Inga og teyminu hans í dag og eflaust ekki krefjandi verkefni þegar liðin voru meira fyrir að sækja, og minna fyrir að verjast. Ég sá ekki atvikið þar sem Siggi Raggi vildi fá víti en heyrði að á sjónvarpsupptökum virðist sem dómarinn hafi haft rétt fyrir sér. Ef svo er þá var þetta toppleikur hjá þeim fyrir utan atvikið sem ég nefni í vondur dagur hér að ofan.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.