Fotbolti.net
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Lengjudeild karla
Þórsvöllur
3 - 1
Grótta
Grótta
Bjarni Guðjón Brynjólfsson 31'1 - 0Valdimar Daði Sævarsson 48'2 - 0Valdimar Daði Sævarsson 74'3 - 03 - 184' Aron Bjarki Jósepsson
Dómari: Twana Khalid Ahmed

SKÝRSLAN: Kærkominn sigur Þórsara

Hvað réði úrslitum?

Leikurinn fór hægt af stað en Þórsarar komu inn marki í fyrri hálfleik og bættu öðru marki við snemma í þeim síðari sem fór langt með að tryggja sigurinn.

Bestu leikmenn

1. Valdimar Daði Sævarsson

Virkilega góður leikur hjá Valdimar. Vann virkilega vel að koma sér í þessi færi sem urðu að mörkum sem gerðu endanlega út um leikinn.

2. Bjarni Guðjón Brynjólfsson

Var líflegur í leiknum og skoraði af miklu harðfylgi gott mark. Aron Birkir Stefánsson var líka með frábærar vörslur í marki Þórs.

Atvikið

Annað mark Þórsara var virkilega mikilvægt. Kom strax í upphafi síðari hálfleik og lagði grunninn að sigrinum. Tómas Johannessen fékk að líta gula spjaldið snemma leiks fyrir dýfu en

Hvað þýða úrslitin?

Þórsararar hoppa upp í 6. sæti og eru tveimur stigum á eftir Gróttu sem situr í 4. sæti en eiga leik til góða. Vestri á líka leik til góða og getur náð Þórsurum. Kærkominn sigur hjá Þór en þeir höfðu ekki unnið leik í fimm síðustu umferðum.

Vondur dagur

Grótta ógnaði aðallega úr föstum leikaatriðum. Áttu fínar tilraunir en það vantaði augljóslega upp á sóknarleikinn.

Dómarinn - 7

Mér fannst hann bara hafa góð tök á þessum leik og ekkert út á hann að setja. Aðal spurningamerkið með dýfuna í upphafi leiks. Sá ekki hvort það hafi verið einhver snerting eða ekki.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.