SKÝRSLAN: Hrafnaflug á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikur Vals þar sem liðið lék á alls oddi. Skoraði þrjú mörk og ógnaði talsvert meira í upphlaupum sínum. KA menn bitu frá sér í síðari hálfleik en skaðinn var skeður og erfitt að ætla sér að koma til baka 3-0 undir þó þeir hafi sannarlega reynt.
Bestu leikmenn
1. Tryggvi Hrafn Haraldsson
Nokkuð auðvelt val í dag fyrir mig. Tryggvi var frábær í fyrri hálfleik, skoraði tvö góð mörk og hefði alveg getað skorað fleiri. Fór að draga af honum í þeim síðari en hann átti það alveg inni.
2. Kristinn Freyr Sigurðsson
Kristinn Freyr kemur sér alltaf í góðar stöður og ef hann er ekki að ógna sjálfur er hann að búa til svæði fyrir félaga sína að sækja í. Fínn dagur hjá honum
Atvikið
Annað mark Vals var atvik dagsins fyrir mér. En Rodri reynir þar að hreinsa fyrirgjöf Tryggva Hrafns frá marki sínu en setur boltann beint í pönnuna á Orra Hrafni sem kom á ferðinni og af Orra snýst boltinn snyrtilega í stöngina fjær og inn. Það er ekki þinn dagur þegar þú færð svona mörk á þig
Hvað þýða úrslitin?
Valur er með 41 stig og setur pressu á Víkinga og minnkar forskot þeirra á toppnum í þrjú stig. KA er enn í sjöunda sæti,
Vondur dagur
Daníel Hafsteinsson var í basli á miðju KA í dag. Mögulega var hann að glíma við einhver smávægileg meiðsli en honum var skipt af velli í hálfleik. Þannig leikmaður þó að hann dvelur ekki lengi við vondan dag og mætir tvíelfdur til leiks næst.
Dómarinn - 9
Í dag finnst mér Erlendur Eiríksson bera af í dómgæslu á Íslandi. Séð nokkra leiki með honum upp á síðkastið og í þeim öllum hefur hann ekki stigið feilspor hvað mig varðar í það minnsta. Sú varð einnig raunin í dag. Eina vafaatriði leiksins var í öðru marki Vals þegar einhverjir KA menn vildu fá aukaspyrnu en ég fékk ekki betur séð á endursýningum að boltinn færi beint í andlit Orra. Frábær leikur hjá Ella sem að er að setja viðmiðið hvað mig varðar.



