Fotbolti.net
Haraldur Ingi Ólafsson Morthens
Augnablik
Augnablik
Lengjudeild kvenna
Kópavogsvöllur
0 - 4
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 131' Linda Líf Boama0 - 234' Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir0 - 365' Dagný Rún Pétursdóttir0 - 466' Nadía Atladóttir
Dómari: Hallgrímur Viðar Arnarson
Myndir: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

SKÝRSLAN: Kennslustund í Kópavogi

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum er að Víkingar fengu fleiri færi og skoruðu úr þeim en ekki Augnablik.

Bestu leikmenn

1. Linda Líf Boama

Linda Líf var frábær allan leikinn og var mjög hættulega alltaf þegar hún var með boltann. Hún skoraði eitt og lagði einnig upp.

2. Selma Dögg Björgvinsdóttir

Selma var frábær á miðjunni hjá Víking í dag og var að vinna alla lausa bolta á miðjunni og skapaði mikið fram á við.

Atvikið

Atvikið er þegar Kolbrún kemur Víking í 2-0 í næstu sókn á eftir fyrsta markinu.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Víkingar eru með 6 stiga forystu á toppnum en Augnablik eru ennþá á botninum með 4 stig, þremur stigum á eftir KR.

Vondur dagur

Mér fannst engin eiga skilið að fá vondan dag en ég myndi líklega gefa vondan dag á sóknarlínu Augnablik fyrir að fara illa með þá sénsa sem þær fengu.

Dómarinn - 3

Ég gef Hallgrími 3 vegna þess að hann tók fullt af lélegum ákvörðunum og mér fannst hann dæma á sum brot sem voru ekki brot því að hann átti að dæma nokkrum mínútum áður. Hann gaf tvö galin gul spjöld sem að áttu alls ekki að vera spjöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.