Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Fótbolti.net bikarinn
Skessan
ÍH
ÍH
4 - 5
KFG
KFG
0 - 122' Árni Eyþór HreiðarssonKarl Viðar Magnússon 30'1 - 11 - 277' Eyjólfur Andri ArasonAtli Hrafnkelsson 79'2 - 22 - 3120' Ólafur Bjarni Hákonarson (víti)Atli Már Grétarsson (víti) 120'3 - 33 - 4120' Jóhann Ólafur Jóhannsson (víti)Benóný Haraldsson (misnotað víti) 120'3 - 5120' Birgir Ólafur Helgason (víti)Gísli Þröstur Kristjánsson (víti) 120'4 - 5120' Tómas Orri Almarsson (misnotað víti)Örn Rúnar Magnússon (misnotað víti) 120'120' Haukur Örn Brink (misnotað víti)Arnar Sigþórsson (misnotað víti) 120'
Dómari: Helgi Ólafsson
Leik lokið!
KFG verður í pottinum þegar dregið verður í undanúrslitin
ÍH
120. mín
Víti misnotað

Arnar Sigþórsson

Arnar klúðrar. Kristófer Leví ver frá Arnari!
KFG
120. mín
Víti misnotað

Haukur Örn Brink

Þórhallur ver frá Hauki!
ÍH
120. mín
Víti misnotað

Örn Rúnar Magnússon

Örn setur boltann yfir.
KFG
120. mín
Víti misnotað

Tómas Orri Almarsson

Þórhallur ver frá Tómasi!!
ÍH
120. mín
Mark úr víti!

Gísli Þröstur Kristjánsson

KFG
120. mín
Mark úr víti!

Birgir Ólafur Helgason

Öruggur.
ÍH
120. mín
Víti misnotað

Benóný Haraldsson

Benóný setur boltann í slánna!
KFG
120. mín
Mark úr víti!

Jóhann Ólafur Jóhannsson

ÍH
120. mín
Mark úr víti!

Atli Már Grétarsson

Setur hann í sama horn og Ólafur Bjarni
KFG
120. mín
Mark úr víti!

Ólafur Bjarni Hákonarson

Ólafur Bjarni setur hann í hægra hornið.
120. mín
VÍTASPYRNUKEPPNI
Helgi Ólafsson flautar og við erum að fara í vítaspyrnukeppni.
120. mín
Kristján Ómar bjargar á línu!!!

Haukur nær skoti sem fer undir Þórhall og stefndi boltinn í netið en KRISTJÁN ÓMAR BJARGAR Á LÍNU!!
120. mín
Venjulegum leiktíma framlengingar er lokið.

Við erum að fara í vítaspyrnukeppni.
114. mín
KFG fær aukspyrnu rétt fyrir utan teig
Jóhann Ólafur tekur spyrnuna en hún er yfir markið.

Þetta er að stefna í vítaspyrnukeppni.
109. mín
STÖNGIN
KFG setur boltann í stöngina. ÍH stál heppnir hér. Sá ekki hver átti skotið.
107. mín
Haukur fær boltann inn á teig ÍH en setur boltann rétt framhjá.
106. mín
KFG sparkar síðari hálfleik framlengingar af stað.
105. mín
Fyrri hálfleik framlengingar lokið
Fimmtán mínútur eftir og ef ekkert mark verður skorað þá erum við á leið í vítaspyrnukeppni!
102. mín
KFG liggja vel á ÍH sem eru að treysta á skyndisóknir
ÍH
98. mín
InnKristján Ómar Björnsson
ÚtGarðar Ingi Leifsson
97. mín
DAUÐAFÆRIIII
KFG kemur boltanum inn á teiginn. Þar er Jóhann Ólafur aleinn á fjærsvæðinu en tekst á einhvern ótrúlegan hátt ekki að skora.

Besta færi leiksins.
96. mín
ÍH með boltann inn á teig KFG en ná ekki skoti á markið.
91. mín
Framlengingin er farin af stað
Heimamenn hefja framlenginguna.
90. mín
Venjulegum leiktíma lokið
Við erum á leið í framlengingu!
87. mín
Váá
KFG lyfta boltanum inn á teiginn og ná skalla á markið sem Þórhallur ver frábærlega. Sá ekki hver átti skallann.
ÍH
79. mín
ÍH SVARAR!!

Atli Hrafnkelsson (stoðsending: Þór Sigurjónsson)

Þór með rosalegt einstaklingsframtak eftir að hafa leikið sér að vörn KFG. Finnur Atla Hrafnkellsson inn á teignum sem setur boltann í netið!

ÞESSI LEIKUR!!
KFG
77. mín
DRAMATÍK!!!

Eyjólfur Andri Arason (stoðsending: Brynjar Már Björnsson)

Markið kemur upp úr aukaspyrnunni. Brynjar Már tekur spyrnuna og Eyjólfur tekur hann niður og setur hann í netið yfir Þórhall í marki ÍH
ÍH
76. mín
HITII

Örn Rúnar Magnússon

Örn brýtur á sér við áhorfendastúkuna og allt verður gjörsamlega tryllt.
ÍH
72. mín
InnBjarki Dan Andrésson
ÚtBrynjar Ásgeir Guðmundsson
ÍH
72. mín
InnÓttar Uni Steinbjörnsson
ÚtRóbert Andri Árnason
ÍH
70. mín
Gult spjald

Benóný Haraldsson

Stoppar hraða skyndisókn hjá KFG.

Fagmannalega gert hjá Benóný
67. mín
Ólafur Bjarni fær boltann við teiginn og nær skoti en það laust beint á Þórhall.
59. mín
KFG í færi
Skotið rétt framhjá.
KFG
57. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtDagur Orri Garðarsson
KFG
57. mín
InnEyjólfur Andri Arason
ÚtGuðmundur Thor Ingason
53. mín
KFG lyftir boltanum inn á teiginn úr auksspyrnu. Hinrik fær boltann en skallar beint á Þórhall.

Þetta var færi!
ÍH
52. mín
Gult spjald

Brynjar Ásgeir Guðmundsson

46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað. Við hljótum að fá fleiri mörk í þetta.

Hvort liðið fær síðasta lausa sætið í undanúrslitum Fótbolta.net bikarsins?
45. mín
Hálfleikur
Helgi Ólafsson flautar til háfleiks. Staðan í hálfleik er 1-1.
ÍH
45. mín
Gult spjald

Garðar Ingi Leifsson

Spjaldaður fyrir tuð.
KFG
42. mín
Gult spjald

Dagur Orri Garðarsson

Brýtur á Karl Viðari á miðjum velli.
36. mín
Færi KFG
Jóhann Ólafur fær boltann inn á teignum í mjög góðu færi en skotið fer af varnarmanni ÍH.
35. mín
Óhefbundin textalýsing
Leiknum er textalýst í gegnum síma og segjum við aðeins frá því helsta sem gerist í Skessunni í kvöld
ÍH
30. mín
ÍH JAFNAR

Karl Viðar Magnússon (stoðsending: Garðar Ingi Leifsson)

Benoný Haraldsson gerir frábærlega úti við hliðarlínu og brotið er á honum. Garðar Ingi tekur spyrnuna og teiknar hann á höfuðið á Karl Viðar sem stýrir boltanum í fjær hornið.

1-1
KFG
22. mín
KFG er komið yfir!!

Árni Eyþór Hreiðarsson

Árni fær boltann inn á teig ÍH og nær skoti sem Þórhallur ver út í teiginn beint á Árna sem kláraði í netið.

1-0 KFG!
20. mín
Mikil barátta inn á vellinum
Leikurinn er mjög jafn og mikið af stöðubaráttum inn á vellinum. Við bíðum eftir fyrsta markinu.
13. mín
ÍH fær hornspyrnu
Garðar Ingi tekur spyrnuna en KFG kemur boltanum í burtu.
10. mín
KFG að herða tökin
Leikurinn farið fram á vallarhelmingi ÍH þessar síðustu mínútur en KFG fengið tvær mjög góðar stöður við teig ÍH.
8. mín
Færi hjá KFG
Dagur Orri fær boltann inn á teignum en Þórhallur Ísak ver nokkuð þægilega.
4. mín
Skýrsluvesen hjà báðum liðum
Bæði lið skiluðu inn röngum skýrslum fyrir leik en við munum reyna hafa þetta eins rétt og við getum með aðstoð nokkra toppmanna!

Leikurinn fer rólega af stað.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað
Helgi Ólafsson flautar til leiks. Heimamenn í ÍH hefja leik.

Góða skemmtun!
Fyrir leik
Baldvin Már Borgarsson spáir í leikinn:



ÍH 1 - 5 KFG
KFG mætir í Skessuna og klárar þennan leik nokkuð þægilega, Lalli Gumm er með þýskan heraga á sínum mönnum enda málmurinn í augsýn og Lalli Gumm elskar góðan málm, sérstaklega eitthvað sem hann hefur aldrei unnið áður.

ÍH liðið hinsvegar tók helgina af fullum krafti og það mun koma í bakið á þeim, þeir byrja þó betur og komast yfir snemma. Svo fer helgin að segja til sín og lappirnar þyngjast, KFG jafnar um miðjan fyrri hálfleik og Hafnfirðingar lifa á lyginni einni út hálfleikinn, Davíð Örvar ÓlaJóson reynir að hrista slenið af sínum mönnum í hálfleik en það gengur ekkert, í seinni hálfleik leika Garðbæingar á als oddi og ganga frá Hafnfirðingum sem verða fegnir við 0 mínútur í uppbótartíma.

Jonni Barðdal skorar tvö og leggur upp tvö, Ólafur Bjarni sýnir listir sínar og Dagur GaddaJóson tekur tvo ef ekki þrjá klobba ásamt því að skora. Hápunktur leiksins verður samt þegar Arnar Sigþórs klobbar Tómas Orra sem bregst illa við og brýtur á honum, fær gult spjald að launum og stúkan fagnar, við það tryllist Tómas og segir vel valin orð við stúkuna, tvíbbarnir lesa í leikinn og kippa Tómasi útaf svo hann fái ekki reisupassann.
Fyrir leik
Óhefbundin textalýsing
Þessum leik verður textalýst í gegnum síma og segjum við aðeins frá því helsta sem gerist í Skessunni í kvöld.
Fyrir leik
Dómari: Helgi Ólafsson


Aðstoðardómarar eru Ragnar Þór Bender og Helgi Hrannar Briem.
Fyrir leik
Dregið í undanúrslit á morgun


Sigurliðið fer í pottinn en dregið verður í undanúrslitin í höfuðstöðvum KSÍ klukkan 13:00 á morgun, fimmtudag. Arnar Laufdal dregur ásamt fulltrúa KSÍ.

Í gær komust KFA, Víðir og KFK í undanúrslitin.

Í pottinum:
ÍH eða KFG
KFA
Víðir
KFK

Um er að ræða bikarkeppni neðri deilda. Undanúrslitin verða leikin laugardaginn 23. september og úrslitaleikurinn verður svo föstudagskvöldið 29. september á Laugardalsvelli.
Fyrir leik
Sæti í undanúrslitum í boði!


Einn leikur er eftir í 8-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins, leikur ÍH og KFG sem fram fer í Skessunni í kvöld klukkan 20:00.

Hafnarfjarðarliðið ÍH tekur á móti grönnum sínum í KFG úr Garðabæ.

ÍH er í næst neðsta sæti 3. deildar en í Fótbolti.net bikarnum hefur liðið slegið út Álftanes og Árborg.



KFG er sigurstranglegra liðið og situr í þriðja sæti 2. deildar. En það getur allt gerst í bikarnum. KFG hefur slegið út Sindra og Augnablik í keppninni.

ÍH býður upp á upphitun fyrir vallargesti frá klukkan 19:15.

„Í Skessunni fyrir leik verða glóðheitir hamborgarar á grillinu, bakkelsi frá Gulla Arnari, ÍH treyjusala og almenn hamingja. Við hvetjum allt stuðningsfólk ÍH að mæta í stemninguna og styðja lið ÍH til sigurs," segir í viðburði ÍH á Facebook.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.