Fotbolti.net
Besta deildin
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla
Kórinn
Innanhúss í ágúst
HK
HK
3 - 1
Keflavík
Keflavík
0 - 145' Sindri Þór Guðmundsson Atli Arnarson (víti) 51'1 - 1Arnþór Ari Atlason 94'2 - 1Eyþór Aron Wöhler 96'3 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Risa atvik í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

Fljót hugsun hjá Örvari í uppbótartíma réði úrslitum úr því sem komið var. En út frá stórum atvikum í leiknum hefði staðan mögulega verið önnur ef þau hefðu verið tækluð rétt. Því miður fyrir Keflavík þá hefur liðið verið óheppið með stór atvik í sumar og það loðir oft við lið sem falla.

Bestu leikmenn

1. Mathias Rosenörn

Virkilega öflugur í markinu og hélt Keflavík inn í leiknum fram í uppbótartíma. Daninn verið einn af ljósari punktum Keflavíkur á tímabilinu.

2. Ahmad Faqa

Fannst miðvörðurinn virkilega öflugur, kryddar leikina aðeins með því að taka sénsa þegar hann stígur upp úr línunni, en það gekk vel í þessum leik. Það lýsir því ágætlega hversu öflugur hann var framan af að samherjar hans vissu ekki hvernig þeir áttu að haga sér þegar hann tapaði skallabolta.

Atvikið

2-1 markið tryggir HK sigurinn. Veit ekki hvort brotið var á Gunnlaugi eins og hann vill meina, Örvar er fljótur að taka innkatið, finnur Eyþór sem flikkar áfram á Arnþór sem kemur boltanum framhjá Mathiasi og sigurinn svo gott sem í höfn.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsti sigur HK í sex vikur og þriðji heimasigurinn. Liðið fer upp fyrir KA í 7. sætið og er nú tveimur stigum frá Stjörnunni í 4. sætinu. Keflavík er sem fyrr í neðsta sæti og er að detta í fjóra mánuði frá fyrsta og eina sigri liðsins í sumar. Sjö stig eru upp í öruggt sæti.

Vondur dagur

Það gæti gleymst að Frans Elvarsson spilaði leikinn. Lét mjög lítið fyrir sér fara og hefur ekki alveg risið með batnandi spilamennsku Keflavíkur. Fyrri hálfleikurinn í heild sinni fær svo að vera nefndur hér þar sem þetta var einn leiðinlegasti hálfleikur sumarsins.

Dómarinn - 3

Heilt yfir ekki nógu gott, bendir á punktinn þegar Örvar fór niður og engin snerting sjáanleg. Sindri Snær átti svo að fá víti hinu megin í stöðunni 1-1. Ekkert dæmt. Risa augnablik í jöfnum leik sem dómarinn klikkar á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.