SKÝRSLAN: Engin óvænt úrslit á Kópavogsvelli
Hvað réði úrslitum?
Augnablik komst óvæntlega yfir snemma í leiknum, en svo skoraði Afturelding rétt fyrir að flautað var til lok fyrri hálfleiks. Eftir það átti Augnablik enginn svör og tók þá Afturelding alveg yfir leiknum.
Bestu leikmenn
1. Meghan Callahan Root
Skoraði tvö mörk í leiknum og stóð sig frábærlega í seinni hálfleik.
2. Díana Ásta Guðmundsdóttir
Átti stórkoslegan fyrri hálfleik og skoraði glæsilegt mark sem kom Augnablik í forystu
Atvikið
Það var lítið sem gerðist í þessum leik. Það var gaman að sjá Augnablik komast yfir því það var óvænt að sjá. Svo skoraði Afturelding rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, sem maður vissi strax myndi hafa mjög slæm áhrif fyrir Augnablik í seinnni hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Augnablik er ennþá í seinasta sæti deildarinnar með 4 stig og Afturelding liggur enn í 5. sæti með 27 stig.
Vondur dagur
Þetta var leikur tvo sitthvora hálfa. Afturelding átti lélegan fyrriu hálfleik, en svo átti Augnablik skelfilegan seinni hálfleik. En reynslan sem leikmenn Aftureldingar hefur var of mikið fyrir þær ungu stelpur í Augnablik. Augnablik náði bara ekki að koma sér aftur inn í leikinn eftir jöfnunarmarkið.
Dómarinn - 7
Fínn dæmdur leikur hjá Nour og hans teymi í leik sem hefði lítið af brotum. Hefði alveg viljað sjá gula spjaldið fara upp á loft einu sinni eða tvisvar miða við nokkur brot, en annars var þetta flott.



