SKÝRSLAN: 50% afsláttur í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
HK-ingar voru vel skipulagðar og undirbúnar undir það að loka á styrkleika Grindavíkur. Það var vissulega heppnisstimpill yfir fyrsta marki leiksins en HK-ingar gengu á lagið og komu sér í toppmál á stuttum kafla í lok fyrri hálfleiks á meðan laskaðir gestirnir reyndu að ráða ráðum sínum. Síðari hálfleikur var heldur bragðdaufur en bæði lið fengu sína sénsa og heimakonur nýttu sína betur.
Bestu leikmenn
1. Brookelynn Paige Entz
Sú er góð í fótbolta. Brookelynn átti mjög góðan leik, þá sérstaklega síðustu 15 mínúturnar í fyrri hálfleiknum en þá gerði HK út um leikinn. Brookelynn skoraði tvö mörk og var mjög ógnandi.
2. Kristín Anítudóttir Mcmillan
Spilaði frábærlega gegn uppeldisfélaginu. Gríðarlega örugg í öftustu línu og hélt öflugum framherjum Grindavíkur í skefjun.
Atvikið
Leikurinn var jafn og spennandi allt fram að fyrsta marki leiksins. Emma Sól Aradóttir kom HK yfir eftir mistök hjá markverði Grindavíkur og slakan varnarleik í kjölfar aukaspyrnu úti á miðjum vallarhelmingi Grindavíkur. Eftir það gengu HK-ingar á lagið og gerðu út um leikinn á stuttum kafla undir lok fyrri hálfleiks.
Hvað þýða úrslitin?
HK fer upp í 32 stig. Eru 3 stigum á undan Fylki sem á tvo leiki til góða og 4 stigum á eftir toppliði Víking sem á einn leik til góða. Miði er möguleiki og HK-ingar halda áfram að láta sig dreyma um sæti í Bestu deildinni að ári.
Vondur dagur
Grindavík fær á sig 5 mörk annan leikinn í röð! Þá hefur liðið fengið alltof mikið af ódýrum mörkum á sig að undanförnu. Anton Ingi þjálfari talaði um 50% afslátt af mörkum og nú þurfa Grindvíkingar að finna leiðir til að stoppa í götin fyrir lokasprettinn.
Dómarinn - 8,5
Mjög flott heildarframmistaða hjá dómaratríóinu.



