Leik lokið!
Valsmenn tryggja sér annað sæti með flottum sigri. Pedersen munurinn á liðunum í dag.
90. mín
Fjórum mínutum bætt við.
89. mín
Patti frábær í dag.
Þrenna frá Danmörku!
Patrick Pedersen (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)
Tryggvi leggur boltann fyrir á Patta sem setur þetta uppi í þaknetið!Patti frábær í dag.
84. mín
Víti misnotað
Patrick Pedersen
Anton ver! Slök spyrna!84. mín
Gult spjald
Anton Logi Lúðvíksson
Víti fyrir Val! Mesta víti sem ég hef séð. Brýtur á Lúkasi. Elli ætlaði fyrst ekki að dæma.83. mín
InnLúkas Logi Heimisson
ÚtKristinn Freyr Sigurðsson
82. mín
Valur komnir í forystu!
Patrick Pedersen
Siggi Lár með fyrirgjöf sem Adam Ægir skallar. Anton ver en Patti eins og gammur og pikkar upp frákastið og skorar!78. mín
InnAndri Rafn Yeoman
ÚtKristinn Steindórsson
Þrefalt!
78. mín
InnÁgúst Eðvald Hlynsson
ÚtJason Daði Svanþórsson
Þrefalt!
78. mín
InnKlæmint Andrasson Olsen
ÚtViktor Karl Einarsson
Þrefalt!
77. mín
Damir hamrar aukaspyrnu yfir markið.
75. mín
Hinum meginn er svo Kristófer með svipaða tilraun beint á Svenna.
75. mín
Birkir með skot af löngu færi beint á Anton.
70. mín
742 Áhorfendur.
68. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
AP að koma inná!
67. mín
Hörkuskot!
Höggi með hörkuskot sem er á leið í netið en Svenni ver vel í horn!
66. mín
Jason Daði með skalla í átt að marki en SIggi Lár bjargar á sínustu stundu.
65. mín
InnBirkir Már Sævarsson
ÚtAron Jóhannsson
63. mín
Allt jafnt!
Þeir jafna aftur!
Kristófer Ingi Kristinsson (stoðsending: Viktor Karl Einarsson)
Flott fyrirgjöf frá Viktori og Kristofér rís hæst og skorar með fínum skalla.Allt jafnt!
60. mín
Höggi keyrir í átt að marki og á skot sem Svenni ver í horn.
57. mín
Höggi með aukaspyrnu á fínum stað. Skotið afar gott en rétt yfir.
56. mín
Sláin!
Höskuldur með flotta fyrirgjöf. Kristófer lúrir á fjær og skallar fyrir á Viktor sem skallar í slánna fyrir opnu marki!
55. mín
Horn fyrir Blika.
51. mín
Gult spjald
Oliver Sigurjónsson
Ljótt brot.51. mín
Tryggvi með fínan sprett en skotið var skelfilegt og langt yfir.
49. mín
Gult spjald
Kristinn Freyr Sigurðsson
Brýtur harkalega á Viktori Karli.46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Valsmenn yfir eftir hörkuskemmtilegan fyrri hálfleik. Sjáumst aftur eftir 15 mín!
45. mín
Einni mínutu bætt við.
43. mín
Valsmenn strax aftur!!
Patrick Pedersen
Svenni neglir boltanum fram og á Patta sem gerir allt rétt og setur þetta í netið. Anton í þessu en nær ekki að halda þessu úti.40. mín
Frábært Slútt!
Anton Logi Lúðvíksson
Kristófer með skot sem Svenni ver frábærlega út í teiginn. Anton Logi mætir á ferðinni og pleisar boltann í hornið: Frábærlega gert.39. mín
Gult spjald
Gísli Eyjólfsson
Smá hiti og gult á báða.39. mín
Gult spjald
Birkir Heimisson
37. mín
Blikar með öll völd!
Kristófer með boltann í gegn á Jason sem skýtur yfir í fínni stöðu. Mark liggur jafnvel í loftinu.
36. mín
Anton Logi með frábæra fyrirgjöf á Kristófer sem reynir hælspyrnu í góðri stöðu en boltinn af Hlyn og aftur fyrir.
35. mín
Höskuldur tekur og reynir að snúa í átt að marki en yfir markið. Sleikti mögulega slánna.
34. mín
Orri Sigurður gerir vel og kemur veg fyrir skot frá VikoriKarl í góðri stöðu. Horn aftur.
33. mín
Hornspyrnan hættuleg frá Högga en fer rétt yfir alla. Viktor Örn nálægt því að komast í þetta.
32. mín
Kristofer tekur í vegginn og yfir.
32. mín
Hólmar fær boltann í hendina og gefur aukaspyrnu á góðum stað.
30. mín
Höskuldur tekur en Svenni gerir vel að slá frá.
30. mín
Gísli Eyjólfs gerir vel og sækir horn.
28. mín
Boltinn virðist fara upp í hendina á Kristni Frey. Hægt að dæma víti en þetta var af stuttu færi. Leyfum Ella að njóta vafans.
26. mín
Horn fyrir Blika.
22. mín
Aron Jó með fyrirgjöf og boltinn i bakið á Höskuldi og þaðan í átt að Antoni. Anton grípur boltann og missir hann inn. Hræðileg mistök hjá Mosfellingnum.
ÚFF!
Anton Ari Einarsson (sjm)
Sprellimark á Hlíðarenda!Aron Jó með fyrirgjöf og boltinn i bakið á Höskuldi og þaðan í átt að Antoni. Anton grípur boltann og missir hann inn. Hræðileg mistök hjá Mosfellingnum.
19. mín
Tryggvi tók og Hólmar nær skalla en hann er langt framhjá.
18. mín
Aukaspyrnan endar með horni.
17. mín
Valur fær aukaspyrnu hér eftir fínan sprett hjá Guðmundi.
9. mín
Darraðadans!
Patrick með boltann fyrir og Anton Ari slæmir hönd í boltann og út í teig. Guðmundur nálægt því að komast í boltann eftir smá klafs en hornspyrna niðurstaðan. Ekkert varð úr horninu.
8. mín
Kristinn Steindórsson leikur listir sínar við hægri kantinn og kemur með boltann fyrir á Gísla sem er í góðu færi en skýtur framhjá.
6. mín
Valur fékk horn en ekkert varð úr. Tryggvi tók spyrnuna.
3. mín
Hólmar braut á Jason Daða sem féll inn í teiginn. Ekkert dæmt en ef þetta hefði verið brot þá væri það aldei víti. Hann var fyrir utan teig.
Fyrir leik
Leikur hafinn
Þetta er komið í gang. Valur byrjar með boltann og leikur í átt að miðbænum.
Fyrir leik
Liðin
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks gerir tvær breytingar frá sigrinum gegn Víkingi. Oliver Sigurjónsson og Kristinn Steindórsson koma inn í liðið og útaf í þeirra stað fara Alexander Helgi Sigurðarson og Klæmint Olsen.
Arnar Grétarsson þjálfari Vals gerir breytingar frá jafnteflinu gegn KR. Guðmundur Andri Tryggvason, Aron Jóhannsson og Orri Sigurður Ómarsson koma inn í liðið. Út í þeirra stað fara Birkir Már Sævarsson, Adam Ægir Pálsson og Orri Hrafn Kjartansson.
Arnar Grétarsson þjálfari Vals gerir breytingar frá jafnteflinu gegn KR. Guðmundur Andri Tryggvason, Aron Jóhannsson og Orri Sigurður Ómarsson koma inn í liðið. Út í þeirra stað fara Birkir Már Sævarsson, Adam Ægir Pálsson og Orri Hrafn Kjartansson.
Fyrir leik
Valur
Valur hefur ekki upp á mikið að keppa í deildinni í þessum seinustu leikjum. Liðið er tryggt í Evrópu og á ekki séns á titlinum. Með því að sleppa við tap í dag tryggir liðið þó endanlega 2. sætið í deildinni. Það yrði svo sannarlega í fyrsta skipti sem annað sæti yrði hlutskipti Arnars Grétarssonar þjálfara liðsins en hann náði því líka með KA og Breiðabliki.

Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik sýndu hvers þeir eru megnugir í seinasta leik er þeir unnu 3-1 sigur á nýkryndum íslandsmeisturum Víkinga. Liðið hafði verið í lægð í smá tíma fram að því. Sigurinn kom liðinu í flotta stöðu í baráttu um evrópusæti og gefur þeim smá andrými. Sigur í dag myndi nær endanlega tryggja þetta og leyfa liðinu að setja einbeitinguna nær alfarið á Sambandsdeildina. 

Fyrir leik
Velkominn á Hlíðarenda
Hér fer fram leikur Vals og Breiðabliks í 3. umferð efri hluta Bestu deildar Karla.





