SKÝRSLAN: Kópavogsbúarnir veðurtepptir á Akureyri eftir jafntefli
Hvað réði úrslitum?
Arnar Freyr í marki HK var frábær en mistök hjá kollega hans hinu megin hafði mikið um það að segja að HK jafnaði metin.
Bestu leikmenn
1. Arnar Freyr Ólafsson
Eins og fyrr segir, frábær í rammanum í dag. Varði tvö dauðafæri og nokkrar flottar tilraunir í viðbót frá KA mönnum sem hann varðist virkilega vel.
2. Atli Þór Jónasson
Gerði vel í að skora mark HK. Erfiður við að eiga fyrir varnarmenn KA í dag.
Atvikið
Viðar Örn Kjartansson snéri aftur í íslenska boltann og var nálægt því að búa til mark fyrir Svein Margeir en hann fór illa að ráði sínu.
Hvað þýða úrslitin?
Sterkt stig fyrir gestina í fyrsta leik en KA menn mega vera svekktir a ðhafa ekki nýtt færin betur
Vondur dagur
Sóknarmenn KA bíta sig í handabökin að hafa ekki nýtt þessi færi sem liðið fékk. Klaufalegt mark sem liðið fékk á sig, erfitt að benda á einhvern einn þar, boltinn laus inn á markteig og margar gular treyjur í kringum boltann og Kristjan Jajalo hefði vel getað gert betur.
Dómarinn - 7
Flottur í dag. Fór lítið fyrir honum framan af en hann lét til sín taka undir lokin og HK komst ekki upp með neinar tafir eða neitt og nokkur spjöld fóru á loft.



