SKÝRSLAN: Fram númeri of stórir fyrir FC Árbæ
Hvað réði úrslitum?
Þessi leikur var mun jafnari en maður bjóst við einhvern veginn, Frammarar voru ekkert að komast í nein dauðafæri nema þessi víti og gerði líklegast þetta rauða spjald síðan út um leikinn og með því komust Fram 3-0 yfir og kláruðu þetta.
Bestu leikmenn
1. Freyr Sigurðsson, Fram
Freysi var svakalegur í fyrri hálfleiknum, bjó til mikið af færum fyrir Frammara og var svakalega lífflegur. Aðrir Frammarar gerðu líka alveg tilkall eins og Kennie Chopart sem gerði bara allt eins rétt og hægt er og miðjan með Freysa, Tryggvi og Breki voru líka frábærir.
2. Bartosz Matoga, FC Árbær
Hann átti kannski ekki margar vörslur en hann bjargaði 2 mörkum varði 1 víti og las síðan Magnús Inga þegar Magnús og Aron Snær sluppu inn fyrir og Magnús ætlaði að renna honum á Aron en Bartosz las það!
Atvikið
Þegar Kennie og Orri skullu saman, það var svakalegt ótrúlegt að Kennie hafi bara haldið leik áfram. Ég fékk að heyra að Orri rotaðist og var búinn að vera frá í 3-4 mánuði eftir höfuðmeiðsli þannig þetta gæti verið mjög alvalegt og óskum Orra góðs bata.
Hvað þýða úrslitin?
Fram er komið í 16- liða úrslit Mjólkurbikarsins! Verða í pottinum á morgun.
FC Árbær er dottið út.
Vondur dagur
Átti hreinlega enginn vondan dag þar sem þetta var mikið bara harka inná miðjunni og langir boltar þá ætla ég kannski að sitja þetta á Ástþór smá klaufaskapur að fá seinna gula, þetta var kannski ekki annað gult en svoldið ákaft meðan við mann á gulu fyrir minn smekk.
Dómarinn - 7
Solid sjöa myndi ég segja eina atvikið sem var kannski smá til umhugsunar var seinna gula á Ástþór en annars svakalega góður leikur hjá Gunnari, mjög spjalda glaður. Líka í svakalegum Adidas Predatorum má ekki taka það af honum.


