Fotbolti.net
Besta deildin
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Besta-deild karla
Meistaravellir
Völlurinn lítur illa út en veðrið er mjög gott
KR
KR
2 - 3
Breiðablik
Breiðablik
0 - 159' Kristinn Steindórsson0 - 277' Viktor Örn Margeirsson Stefán Árni Geirsson 86'1 - 21 - 389' Jason Daði SvanþórssonBenoný Breki Andrésson (víti) 92'2 - 3
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Vantar öflugri Smitvarnir í Vesturbæinn?

Hvað réði úrslitum?

Fannst Blikarnir vera aðein ofan á en var kannski ekki endilega að búast við marki frá þeim akkúrat þegar þeir svo skoruðu. Voru betri í fyrri hálfleiknum og sanngjarnt kannski eftir það að þeir komust svo yfir í seinni. Leikplanið þeirra var gott, vel undirbúnir undir fæting og menn klárir með sín hlutverk. KR kom sér í fínar stöður en menn fram á við voru ekki alveg tengdir í að nýta sér stöður við teiginn. Bestu leikmenn KR voru bakverðirnir og varamennirnir. Þriðja mark Blika ræður svo úrslitum í rauninni, of djúp hola fyrir KR til að koma til baka og engin hætta þannig séð sem myndast við mark Blika í stöðunni 3-2.

Bestu leikmenn

1. Jason Daði Svanþórsson

Virkar 100% heill sem er frábært fyrir Blika. Á sínum degi er hann hættulegasti leikmaður deildarinnar, alltaf að og aldrei hræddur við að taka menn á.

2. Kristinn Steindórsson

Frábær þær mínútur sem hann spilaði, leikskilningur í hæsta gæðaflokki og frábært hlaup í markinu. Biluð gæði í Kidda.

Atvikið

Mistökin í þriðja marki Blika eru það dýr að þau verða að vera atvik leiksins. Stórskemmtilegur leikur, nóg af hita og mörkum en þetta reyndist stærsta einstaka atvikið.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru með níu stig líkt og FH í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum á eftir meisturum Víkings. Þeir svara vel eftir tvö töp á undan þessum leik. KR hefur nú tapað tveimur deildarleikjum í röð, en þeir gerðu allavega meira en gegn Fram um síðustu helgi.

Vondur dagur

Guy Smit gerir aulaleg mistök sem leiða til þriðja marks Breiðabliks. Markmannsmistök eru oft þau dýrustu í boltanum. Spurning hvort Ryder kalli í Sam Blair eða Sigurpál Sören fyrir næsta leik? Tökum ekkert af Jasoni Daða sem klárar vel. Fannst Aron Bjarnason koma sér í góðar stöður en virðist vanta einhverja trú á því að gera meira úr stöðunum. Annan leikinn í röð voru svo Atli Sigurjónsson og Luke Rae ekki að gera mikið fyrir mig. Fyrir utan markið sást Benoný takmarkað, var ekki mikill hluti af fætingnum og kannski söknuður í Flóka þar.

Dómarinn - 6,5

Finnst að menn megi alveg tjá sig á hliðarlínunni og skrítið að vara menn við því að eitt orð í viðbót verði sjálfkrafa gult spjald (sjá viðtal við Dóra). Fannst heilt yfir dómararnir fjórir dæma þennan leik fínt, misstu af því að þegar Aron fer utan í Jason af boltanum sem kveikti í Dóra en stóru atvikin rétt. Ég hef ekkert á móti mörgum spjöldum en skemmtilegra þegar menn fá aðeins að láta í sér heyra.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.