Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Léttskýjað en hlýtt, príma aðstæður
Víkingur R.
Víkingur R.
4 - 2
KA
KA
0 - 17' Sveinn Margeir HaukssonDanijel Dejan Djuric (víti) 20'1 - 1Nikolaj Andreas Hansen 36'2 - 1Aron Elís Þrándarson (f) 45'3 - 1Danijel Dejan Djuric 63'4 - 14 - 276' Elfar Árni Aðalsteinsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Víkingar sigra en dómgæslan stórfurðuleg

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru beittir þegar þeir fengu færi og kláruðu þau mjög vel. Hinsvegar hefði leikurinn getað farið öðruvísi ef dómgæslan hefði verið í lagi. Víkingar ögn betra liðið í dag en fengu svo sannarlega hjálp.

Bestu leikmenn

1. Danijel Dejan Djuric (Víkingur)

Danijel skoraði tvö mörk annað af punktinum og hitt vel fyrir utan teig. Góður leikur frá honum og hann var nálægt því að fullkomna þrennuna í lok leiksins.

2. Ari Sigurpálsson (Víkingur)

Ari var mjög líflegur í sóknarleik Víkings. Hann sækir vítaspyrnuna og leggur upp markið á Aron. Hann er alltaf stórhættulegur með sinn hraða bakvið vörnina.

Atvikið

Vítaspyrnudómurinn í fyrri hálfleik. Þetta var voðalega lítil snerting og mér fannst þetta ekki vera víti. En fyrst hann dæmir þá er það líka rétt hjá Aron Elís sem sagði í viðtali að þá er Ingimar að ræna upplögðu marktækifæri og hann á að fá rautt spjald en ekki gula spjaldið sem hann fékk.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru áfram með fullt hús stiga núna 12 stykki eftir 4 leiki. KA menn eru enn bara með 1 stig og staðan í töflunni lítur illa út.

Vondur dagur

Viðar Örn Kjartansson er settur inn á þegar það eru u.þ.b. 35 mínútur eftir af leiknum til þess að reyna minnka muninn. Það kom hinsvegar ekkert frá honum í leiknum hvorki færi né eitthvað annað jákvætt.

Dómarinn - 2

Gunnar Oddur dómari leiksins fær 4 vítaköll til þess að dæma úr og að mínu mati eru þau öll röng. Fyrsta dæmir hann víti og gult sem var mjög 'soft' en ef það er línan sem hann leggur fyrir hvað skuli vera vítaspyrna, þá á KA að fá 2 víti í leiknum og Víkingur líkast til 1 til viðbótar. Hallgrímur Jónasson minnist líka á brot í öðru marki Víkinga, sjálfur hef ég ekki skoðað það nægilega vel en ef Hallgrímur hefur rétt fyrir sér þá er bara voða lítið sem var gert rétt í stóru ákvörðunum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.