Fotbolti.net
@fotboltinetLogi Freyr Gissurarson
2. deild karla
JÁVERK-völlurinn
Sól og blíða á rennisléttu gervigrasinu.
Selfoss
Selfoss
1 - 0
Kormákur/Hvöt
Kormákur/Hvöt
Gonzalo Zamorano Leon 69'1 - 0
Dómari: Breki Sigurðsson

SKÝRSLAN: Seigla Selfyssinga skilaði stigunum

Hvað réði úrslitum?

Það mátti vart á milli sjá en gæðin hjá Selfyssingum voru örlítið meiri í dag. Það vantaði ekkert upp á baráttuna hjá báðum liðum en gæðin og yfirvegunin hjá Gonzo í markinu réði úrslitum í dag

Bestu leikmenn

1. Ívan Breki Sigurðsson

Auk þess að leggja upp sigurmarkið í dag, eftir frábæran sprett upp hægri vænginn, hlýtur Ívan Breki nafnbótina maður leiksins fyrir hönd allra varnarmanna Selfoss sem stigu ekki feilspor í dag. Ívan Breki heldur hreinu og á stoðsendingu = maður leiksins.

2. Gonzalo Zamorano

Gæðaleikmaður sem á eftir að reynast varnamönnum deildarinnar erfiður í sumar. Sneri varnamann Kormáks/Hvatar afar huggulega af sér í dag.

Atvikið

Klárlega markið sem kom í raun úr eina góða færi leiksins.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að liðin færast nær þeim stað sem spá Fótbolta.net gerði ráð fyrir.

Vondur dagur

Gestirnir klárlega svekktir að fá ekkert út úr þessum leik en þeir geta þó borið höfuðið hátt eftir góða framistöðu. Mögulega má segja að framherjar þeirra hafi átt vondan dag fyrir að hafa ekki náð að gera sér meiri mat úr þeim hálffærum sem þeir fengu.

Dómarinn - 9

Leikurinn fékk að fljóta mjög vel, engin stór vafaatriði en einstaka hrindingar sem fengu þjálfara beggja liða til að þenja raddböndin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.