Fotbolti.net
Besta deildin
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Skýjað og 7° vindurinn samt ekkert að trufla
FH
FH
3 - 2
Vestri
Vestri
0 - 113' Andri Rúnar BjarnasonSigurður Bjartur Hallsson 25'1 - 11 - 245' Andri Rúnar BjarnasonSigurður Bjartur Hallsson 47'2 - 2Úlfur Ágúst Björnsson (víti) 67'3 - 2
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Rothögg á 47. mínútu svæfði Vestramenn

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn þar sem FH var meira með boltan en Vestri voru hættulegir í skyndisóknum. Manni fannst kannski að Vestra liðið myndi ná að halda í 2-1 stöðuna sem þeir fóru með inn í seinni hálfleikinn mikið lengur en FH skoraði strax á 47. mínútu og eftir það var bara eitt lið á vellinum í langan tíma. FH fær svo víti fyrir klaufalega hendi sem kemur þeim yfir og Vestri reyndi að sækja í lokin til að jafna en það kom ekki neitt mjög mikið upp úr því.

Bestu leikmenn

1. Ástbjörn Þórðarson (FH)

Illa vegið að tveimur mönnum sem skora 2 mörk, en Ástbjörn var virkilega flottur í leiknum. Hann leggur upp bæði mörk Sigurðar og stóð bæði vörn og sókn gríðarlega vel.

2. Andri Rúnar Bjarnason (Vestri)

Það var gríðarlega erfitt að velja milli þeirra fjögurra leikmanna sem mér fannst koma til greina. Sigurður Bjartur og Kjartan Kári mega vera fúlir út í mig fyrir að fá ekki þessa dálka. Andri var hinsvegar alveg óstöðvandi í loftinu þessar 60 mínútur sem hann spilaði. Það komst enginn nálægt honum ef hann ákvað að hann ætlaði að vinna boltan og hann uppskar tvö verðskulduð mörk.

Atvikið

Hendi - víti á Pétur Bjarnason. FH fær vítaspyrnu á 67. mínútu eftir að boltinn skoppar afar óheppilega upp í höndina á Pétri. Hárréttur dómur en maður finnur til með Pétri þar sem þetta var algjört óviljaverk.

Hvað þýða úrslitin?

FH-ingar eru tímabundið í 2. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 5 leiki. Virkilega sterk byrjun hjá Hafnfirðingunum. Vestra menn eru í 8. sæti deildarinnar með 6 stig eftir 5 leiki. Nokkurnvegin á pari við það sem þeir bjuggust við líkast til.

Vondur dagur

Meiðsla vandræði Vestra manna. Þeir missa tvo menn af velli í fyrri hálfleik, þá Tarik Ibrahimagic og Elmar Atla Garðarson fyrirliða liðsins. Báðir stórir póstar í liði þeirra og vonandi þeirra vegna verða þeir ekki lengi frá. Þeir bætast við meiðslalista sem stækkar bara hjá liðinu.

Dómarinn - 8

Virkilega vel dæmdur leikur að mér fannst. Það var ekki jafn mikið um þessa spjalda gleðis línu eins og hefur verið í upphafi móts sem var ánægjulegt. Eina spurningamerkið er þegar Elmar Atli meiðist, þá fer Logi Hrafn frekar harkalega í hann. Ég á eftir að skoða það atvik betur en það gæti verið umdeilt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.